Brýtur ekki í bága við lög eða skuldbindingar

Fiskeldi í Súðavík.
Fiskeldi í Súðavík. mbl.is/Halldór Sveinbjörnsson

Lög­in um að heim­ila ráðherra að veita fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­um rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða ganga hvorki í ber­högg við lög um úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála né ákvæði Árósa­samn­ings­ins.

Kem­ur þetta fram í grein­ar­gerð með frum­varpi sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra en lög­in voru samþykkt í síðustu viku, að því er seg­ir í Morg­un­blaðinu í dag.

Jón Þór Ólason, formaður Stanga­veiðifé­lags Reykja­vík­ur og lektor við laga­deild Há­skóla Íslands, og Sif Kon­ráðsdótt­ir, lögmaður og fyrr­ver­andi aðstoðarmaður um­hverf­is­ráðherra, gagn­rýndu laga­setn­ing­una og málsmeðferð við hana í viðtalsþætti Bjart­ar Ólafs­dótt­ur, Þing­völl­um, á út­varps­stöðinni K100 í gær­morg­un. Sif sagði að lög­in græfu und­an sjálf­stæði úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála og Jón Þór sagði að lög­fræðilega væri þetta stór­slys.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: