Fiskeldi í Reyðarfirði fyrir dóm

Fiskistofa veitti Löxum fiskeldi ehf. rekstrarleyfi þann 15. mars 2012, …
Fiskistofa veitti Löxum fiskeldi ehf. rekstrarleyfi þann 15. mars 2012, til reksturs sjókvíaeldis á laxi í Reyðarfirði. mbl.is/Golli

Mál mál­sókn­ar­fé­lags­ins Nátt­úru­vernd­ar 2 á hend­ur Mat­væla­stofn­un og Löx­um fisk­eldi ehf. verður flutt fyr­ir Héraðsdómi Reykja­ness 15. nóv­em­ber. Krefst stefn­andi þess að ógilt verði með dómi rekstr­ar­leyfi sem Fiski­stofa veitti Löx­um fisk­eldi ehf. 15. mars 2012 til rekst­urs sjókvía­eld­is á laxi í Reyðarf­irði.

Upp­haf­lega fóru Mat­væla­stofn­un og Lax­ar fisk­eldi ehf. fram á að mál­inu yrði vísað frá. Í sam­tali við blaðamann seg­ir Kon­ráð Jóns­son, lögmaður Nátt­úru­vernd­ar 2, að frá­vís­un­ar­kraf­an hafi byggst á að ekki væri hægt að sýna fram á lögv­arða hags­muni, en að þeirri kröfu hafi verið hrundið.

Deilt um rekstr­ar­leyfi

Hann seg­ir málið „byggj­ast meðal ann­ars á því að þessi starf­semi sem slík brjóti gegn nátt­úru­vernd­ar­lög­um, en svo snýr þetta einnig að málsmeðferðinni, sem sagt að rekstr­ar­leyfið hafi runnið út“. Þá kem­ur fram í stefnu mál­sókn­ar­fé­lags­ins að það telji að rekstr­ar­leyfið sem var veitt 2012 væri sam­kvæmt þágild­andi lög­um skil­yrt við að rekst­ur yrði haf­inn inn­an tveggja ára. Einnig kem­ur fram að Mat­væla­stofn­un var heim­ilt að lengja þann frest um eitt ár sem myndi þýða að rekstr­ar­leyfið ætti að hafa runnið út árið 2015.

Í grein­ar­gerð Laxa fisk­eld­is ehf. seg­ir hins veg­ar að þegar fyr­ir­tækið af­henti Skipu­lags­stofn­un grein­ar­gerð árið 2011 vegna fyr­ir­hugaðs fisk­eld­is hafi komið fram að fyr­ir­ætlan­ir fyr­ir­tæk­is­ins hafi ávallt miðað við að „fram­leiðsla yrði kom­in á full­an skrið á ár­inu 2018“.

Einnig seg­ir að Fiski­stofu hafi verið kunn­ugt um þetta þar sem stofn­un­inni hafi verið veitt­ar all­ar upp­lýs­ing­ar þegar hún veitti um­sögn um mats­skyldu verks­ins ásamt því að rekstr­ar­leyfið hafi verið veitt til tíu ára. Í stefnu Nátt­úru­vernd­ar 2 er talið að fram­kvæmd­ir og rekst­ur hefðu átt að fara í um­hverf­is­mat, en fram kem­ur í grein­ar­gerð Mat­væla­stofn­un­ar að Skipu­lags­stofn­un hafi árið 2011 ekki talið slíkt mat nauðsyn­legt fyr­ir fyr­ir­hugað 6 þúsund tonna lax­eldi í Reyðarf­irði. Vísaði Skipu­lags­stofn­un til um­hverf­is­mats sem var gert árið 2002 vegna fisk­eld­is Sam­herja hf. í Reyðarf­irði.

Á þetta fall­ast máls­hefjend­ur ekki og segja það mat að miklu leyti úr­elt þar sem fram hafa komið nýj­ar rann­sókn­ir sem sýna hættu sem fylg­ir sjókvía­eldi og áhrif­um strok­fiska á stofna villtra laxa. Bent er á að Norðmenn telji að einn eld­islax sleppi fyr­ir hvert tonn sem fram­leitt er og er vísað til er­lendra rann­sókna sem máls­hefjend­ur segja sýna mikla hættu.

Fjallað er ít­ar­leg­ar um málið í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: