Íbúar skildir eftir í mikilli óvissu

Bæjarstjórnin skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að …
Bæjarstjórnin skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að skapa umgjörð um fiskeldi á Íslandi sem gerir því kleift að vaxa til framtíðar. mbl.is/Sigurður Bogi

Vest­f­irðing­ar þekkja það allt of vel að fram­fara­mál í fjórðungn­um séu stöðvuð af óljós­um tækni­leg­um ástæðum. Óásætt­an­legt er að rekstr­ar­grund­velli fyr­ir­tækja þar, sem og ann­ars staðar á Íslandi, sé kippt und­an þeim eins og staðan er nú í ís­lensku fisk­eldi.

Þetta seg­ir í bók­un bæj­ar­stjórn­ar Bol­ung­ar­vík­ur­kaupstaðar, sem samþykkt var á fundi henn­ar í síðustu viku.

„Það er ólíðandi að íbú­ar í Vest­ur­byggð og Tálknafirði séu skild­ir eft­ir í mik­illi óvissu og nauðsyn­legt að þetta fólk fái af­drátt­ar­laus­an stuðning stjórn­valda. Nú er málið komið á þann stað að aðgerða er þörf. Það er krafa okk­ar að tím­inn sé vel nýtt­ur til að horfa til framtíðar og til að skapa um­gjörð sem ger­ir fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­um kleift að vaxa og byggj­ast upp,“ seg­ir í bók­un­inni.

„Bæj­ar­stjórn styður fylli­lega að gætt sé varúðar við upp­bygg­ingu fisk­eld­is. Ekki hef­ur verið farið fram á annað en að upp­bygg­ing­in verði í sátt við nátt­úru og að upp­fyllt­um skil­yrðum.“

Bæj­ar­stjórn­in skor­ar á stjórn­völd að beita sér fyr­ir því að skapa um­gjörð um fisk­eldi á Íslandi sem ger­ir því kleift að vaxa til framtíðar, „án sí­felldra áfalla, vanda­mála og uppá­koma eins og sam­fé­lagið hef­ur orðið vitni að und­an­farna daga og vik­ur. Fisk­eldi er um­hverf­i­s­væn at­vinnu­grein sem hef­ur alla burði til að vera einn af horn­stein­um í vest­firsku og ís­lensku at­vinnu­lífi til framtíðar.“

mbl.is