Kallaði fram í fyrir ráðherra: „Þvæla!“

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. mbl.is/Eggert

Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, og Gunn­ar Bragi Sveins­son, þingmaður Miðflokks­ins, sem áður gegndi sama embætti, tók­ust á um stöðu yf­ir­manns fisk­eld­is­sviðs Haf­rann­sókna­stofn­un­ar í fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi á mánu­dag.

Kristján sagði ekki sér­lega heppi­legt að yf­ir­maður fisk­eld­is­sviðs Haf­rann­sókna­stofn­un­ar hafi aðset­ur á Ísaf­irði, þar sem meðal ann­ars sé mik­il­vægt að sviðsstjórn­in sé nærri starfs­mönn­um sín­um og yf­ir­stjórn stofn­un­ar­inn­ar vegna mót­un­ar og upp­bygg­ing­ar sviðsins.

Til­efnið var fyr­ir­spurn Gunn­ars Braga, sem bent hafði á að í sept­em­ber 2016 hefði nefnd, sem skipuð hefði verið af þáver­andi for­sæt­is­ráðherra til að kanna hvernig efla mætti Vest­f­irði og fjölga þar störf­um, lagt til að miðstöð fisk­eld­is yrði staðsett í fjórðungn­um.

„Í kjöl­far funda í ráðuneyt­inu, sem sá er hér stend­ur sat á þeim tíma, mjög stutt reynd­ar, var rætt við emb­ætt­is­menn ráðuneyt­is­ins og for­stjóra Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Sú ákvörðun var tek­in að byggja upp starf­semi fisk­eld­is­sviðs Haf­rann­sókna­stofn­un­ar á Ísaf­irði,“ sagði Gunn­ar Bragi og bætti við að þessi áform hefðu verið til­kynnt 6. októ­ber sama ár. Þá hefði starf­sem­in átt að hefjast á Ísaf­irði í árs­byrj­un 2018.

200 míl­ur greindu frá áformun­um sam­dæg­urs.

Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Gunn­ar Bragi Sveins­son, þingmaður Miðflokks­ins og fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

„Hvað í ósköp­un­um tef­ur?“

„Nú erum við kom­in inn í októ­ber 2018 og enn hef­ur þessi starf­semi ekki haf­ist fyr­ir vest­an,“ hélt Gunn­ar Bragi áfram.

„Hug­mynd­in var að sjálf­sögðu að sér­fræðing­ur­inn, yf­ir­maður fisk­eld­is­sviðsins, yrði staðsett­ur þar, síðan mynd­um við hlaða utan á þetta störf­um. Að sjálf­sögðu er það al­gjör­lega í sam­ræmi við yf­ir­lýs­ing­ar rík­is­stjórna lík­lega svo langt aft­ur sem við get­um öll munað, það er að verið er að styrkja lands­byggðina, flytja störf út á land og fjölga störf­um úti á landi. Þarna átti að búa til nýtt svið og efla það sem næst þeim iðnaði sem sviðið til­heyr­ir,“ sagði þingmaður­inn.

Beindi hann þá tveim­ur spurn­ing­um að ráðherr­an­um, ann­ars veg­ar hvort ákvörðun hans frá ár­inu 2016 hafi verið breytt, og hins veg­ar, væri sú raun­in, hvaða rök væru fyr­ir því að breyta þeirri ákvörðun.

„Ef ákvörðun­inni hef­ur ekki verið breytt, hvað í ósköp­un­um tef­ur það að starf­sem­in flytj­ist á Ísa­fjörð? Mér er ekki kunn­ugt um að það sé hús­næðisekla eða eitt­hvað slíkt sem komi í veg fyr­ir að menn setji sig niður á Ísaf­irði,“ sagði Gunn­ar Bragi.

Staðsetningin á Ísafirði er sögð ekki vera sérlega heppileg.
Staðsetn­ing­in á Ísaf­irði er sögð ekki vera sér­lega heppi­leg. mbl.is/​Sig­urður Bogi

Aukið um­svif­in á Ísaf­irði

Kristján Þór sagði Haf­rann­sókna­stofn­un hafa fagnað vilja ráðherra til að efla starfs­stöðina á Ísaf­irði, í svari við fyr­ir­spurn sem ráðuneytið hafi lagt fyr­ir stofn­un­ina í októ­ber á síðasta ári, og reifaði svo svar stofn­un­ar­inn­ar:

„Hins veg­ar sé ekki heppi­legt að færa stöðu sviðsstjóra fisk­eld­is og fisk­rækt­ar á Ísa­fjörð af þeim sök­um að á Íslandi sé og muni verða fjöl­breytt fisk­eldi um allt land. Sjókvía­eldi á laxi sé ein­ung­is einn hluti fisk­eld­is­ins á Íslandi sem sé allt í þróun og taki nú mikl­um breyt­ing­um.“

Mik­il­vægt sé þá meðal ann­ars að sviðsstjórn­in sé nærri starfs­mönn­um sín­um og yf­ir­stjórn stofn­un­ar­inn­ar vegna mót­un­ar og upp­bygg­ing­ar sviðsins, og um leið vegna vinnu við stefnu­mót­un fyr­ir fisk­eldi í land­inu og upp­bygg­ingu rann­sókna á grein­inni.

„Staðsetn­ing á Ísaf­irði er ekki því sér­lega heppi­leg fyr­ir þetta starf. Í þessu sam­bandi sé einnig rétt að benda á að er for­stjóri sem ber ábyrgð á stjórn, rekstri og starfs­skipu­lagi stofn­un­ar­inn­ar gagn­vart ráðherra og ger­ir rekstr­aráætl­un fyr­ir hana,“ bætti ráðherr­ann við.

„Ég hef rætt við for­stjóra Haf­rann­sókna­stofn­un­ar um að ég telji mjög mik­il­vægt að fisk­eld­is­hluti stofn­un­ar­inn­ar verið treyst­ur á Ísaf­irði. Ég tel þann stað heppi­leg­ast­an og deili þeirri skoðun með hátt­virt­um þing­manni að til þess að byggja upp þátt rík­is­ins varðandi fisk­eldið sé heppi­legt að það skuli gert þar. Ég vil nefna það hér að Haf­rann­sókna­stofn­un hef­ur und­an­farið aukið um­svif sín á Ísaf­irði. Þar hef­ur fjölgað úr fimm í sjö stöður.“

„Ef við ætlum að vera samkvæm sjálfum okkur í þessu …
„Ef við ætl­um að vera sam­kvæm sjálf­um okk­ur í þessu efni þarf ein­fald­lega að breyta lög­um,“ sagði ráðherr­ann. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

„Al­gjör­lega fá­rán­legt“

Gunn­ar Bragi svaraði ráðherr­an­um skömmu síðar:

„Ein­hver emb­ætt­ismaður, al­veg sama hvað hann heit­ir, get­ur ekki tekið ein­hverja aðra ákvörðun. Hon­um ber bara að hlýða því sem fyr­ir­skipað er. Það er ekki eins og verið sé að offra Haf­rann­sókna­stofn­un með þessu. Talað er um að byggja upp deild sem er vax­andi, til­tölu­lega ný á þeim stað þar sem mest starf­semi í lax­eldi fer fram í dag,“ sagði þingmaður­inn meðal ann­ars.

„Auðvitað er hægt að segja það um öll störf að þau eigi bet­ur heima í Reykja­vík af því að það sé miklu nær öllu og starf­semi sé úti um allt land. Það er sagt um hvert ein­asta starf hjá rík­inu. Eru það rök­in fyr­ir því að ekki eigi að byggja upp úti á landi að það séu mögu­lega fleiri störf sem verði til seinna ein­hvers staðar ann­ars staðar? Það er al­gjör­lega fá­rán­legt. Ég ætla ekki að trúa því að sá ráðherra sem hér sit­ur ætli að láta emb­ætt­is­menn­ina segja sér fyr­ir verk­um í þessu máli. Ætlar ráðherr­ann virki­lega að sitja hjá og láta þetta sigla fram hjá sér og segja: Ég hef ekk­ert um þetta að segja? Af því að hann hef­ur allt um þetta að segja. Ráðherr­ann hef­ur allt um það að segja hvernig þessi starf­semi fer fram.“

Kristján Þór sagði Hafrannsóknastofnun hafa fagnað vilja ráðherra til að …
Kristján Þór sagði Haf­rann­sókna­stofn­un hafa fagnað vilja ráðherra til að efla starfs­stöðina á Ísaf­irði.

„Þetta er allt í lög­um!“

Kristján Þór kom þá til svara og sagði að sér þætti það leitt, „að fyrr­ver­andi ráðherra hafi ekki tek­ist að beygja for­stjór­ann bet­ur en hann seg­ist hafa getað gert“.

„Það er ein­hver ástæða fyr­ir því, virðulegi for­seti, að for­stöðumenn rík­is­stofn­ana hafa að lög­um ákveðið hlut­verk. Ég veit ekki hvað hátt­virt­ir þing­menn ætla að gera ef ein­stak­ir ráðherr­ar eiga að fara að hlutast til um dag­leg­an rekst­ur stofn­ana og fara að standa í mannaráðning­um þar inni. Ef við ætl­um að taka þetta mál munu menn verða krafðir svara víðar en bara í þessu efni. Vissu­lega skul­um við taka þá umræðu, en ég kalla þá eft­ir því hvernig menn ætla að fara með aðra sam­bæri­lega hluti,“ sagði ráðherr­ann, en Gunn­ar Bragi kallaði oft fram í mál hans úr saln­um.

„Ef við ætl­um að vera sam­kvæm sjálf­um okk­ur í þessu efni þarf ein­fald­lega að breyta lög­um,“ hélt Kristján Þór áfram. 

„Þetta er allt í lög­um!“ kallaði Gunn­ar Bragi þá hátt og skýrt úr saln­um.

„Þetta er bundið í lög, virðulegi for­seti,“ sagði ráðherr­ann og svaraði þannig þing­mann­in­um.

„Eins og ég gat um áðan varðandi lög um Hafró, sam­kvæmt 2. mgr. 3. gr., þá ber for­stjóri ábyrgð á stjórn og rekstri stofn­un­ar­inn­ar eins og hann til­tek­ur í svar­inu sem ég fékk frá hon­um. Ætla menn virki­lega að halda því fram að for­stjór­inn hafi ekki umboð til þess að ráða og reka starfs­fólk? Hann hef­ur allt umboð til þess. Áhersl­ur okk­ar geta legið í því að byggja upp eft­ir­lit með fisk­eldi,“ sagði Kristján.

Kallaði Gunn­ar Bragi þá enn og aft­ur fram í: „Póli­tísk ákvörðun og þor!“

Ein­hver fyr­ir­staða hafi verið

„Stund­um er mjög auðvelt, virðulegi for­seti, eins og hér er kallað fram í úr sal að það skorti bara póli­tískt hug­rekki og þor. Hvers vegna í ósköp­un­um dett­ur þá sum­um ráðherr­um í hug að grípa til aðgerða sem ekki stand­ast lög og lenda síðan í bölvuðum mála­rekstri og veseni með fram­kvæmd slíkra aðgerða? Hvernig í ósköp­un­um stend­ur á því að fyrr­ver­andi ráðherra fulln­ustaði ekki málið? Ein­hver fyr­ir­staða hef­ur verið þar,“ full­yrti ráðherr­ann, gegn framíköll­um Gunn­ars Braga.

„Ég vil meina það, virðulegi for­seti ef ég fæ frið til að svara, ég vil meina það að það séu lög­in sem for­stjór­inn ber fyr­ir sig sem valda því að þessi ann­ars ágæti vilji hátt­virts fyrr­ver­andi ráðherra náði ekki að fulln­ust­ast. Það er ekk­ert flókn­ara mál en svo. Ráðherr­ann [fyrr­ver­andi] verður bara að beygja sig und­ir það, að hann hafði ekki afl til þess að koma vilja sín­um fram.“

„Þvæla!“ kallaði Gunn­ar Bragi þá fram í, á meðan ráðherr­ann steig úr pontu.

mbl.is