Beðið svara ráðuneyta um ný leyfi

Frumvarpið var samþykkt á Alþingi þriðjudaginn 9. október.
Frumvarpið var samþykkt á Alþingi þriðjudaginn 9. október. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in hafa sótt um bráðabirgðal­eyfi til viðkom­andi ráðuneyta til að stunda áfram lax­eldi í Pat­reks­firði og Tálknafirði, þrátt fyr­ir ógild­ingu úr­sk­urðar­nefnd­ar á leyf­un­um. Jafn­framt vinna þau að úr­bót­um á um­hverf­is­mati og und­ir­búa það að bera úr­sk­urði úr­sk­urðar­nefnd­ar­inn­ar und­ir dóm­stóla.

Stjórn­ar­frum­varp um heim­ild til sjáv­ar­út­vegs­ráðherra að gefa út rekstr­ar­leyfi til fisk­eld­is­fyr­ir­tækja til bráðabirgða, þegar brýna nauðsyn ber til, var samþykkt á Alþingi þriðju­dag­inn 9. októ­ber. Frum­varpið sner­ist um að veita ráðherra sam­bæri­lega heim­ild varðandi rekstr­ar­leyfi og um­hverf­is­ráðherra hef­ur til að veita tíma­bundna und­anþágu frá kröfu um starfs­leyfi.

Arn­ar­lax (móður­fé­lag Fjarðalax) og Arctic Fish (móður­fé­lag Arctic Sea Farm) sóttu um und­anþágu­leyfi til beggja ráðuneyt­anna strax dag­inn eft­ir að frum­varpið var samþykkt. Sig­urður Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Arctic Fish, seg­ir að ekki hafi þótt ástæða til að sækja fyrr um und­anþágu til um­hverf­is­ráðherra því bæði leyf­in séu nauðsyn­leg til þess að hægt sé að halda starf­sem­inni áfram. Fyr­ir­tæk­in hefðu ekki verið bet­ur sett með annað leyfið ef hitt vantaði. Von­ast Sig­urður til að leyf­in fá­ist sem fyrst.

Ítar­legri um­fjöll­un um málið má lesa í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: