Myndaði sýkta og afmyndaða laxa

Laxeldi í sjókvíum. Mynd úr safni.
Laxeldi í sjókvíum. Mynd úr safni. mbl.is/RAX

Sænsk­ur blaðamaður hef­ur verið kvadd­ur til að mæta fyr­ir rétt í Nor­egi, en hann hef­ur neitað að greiða sekt fyr­ir brot á lög­um rík­is­ins um fisk­eldi, þar sem kveðið er á um að al­menn­ing­ur megi ekki fara nær fisk­eldi en sem nem­ur 20 metr­um.

Blaðamaður­inn, Mika­el Fröd­in, kafaði síðasta sum­ar niður að sjókví­um fyr­ir­tæk­is­ins Grieg Sea­food í Altaf­irði, í Norður-Nor­egi, til að mynda laxa. Sekt­in fyr­ir at­hæfið hljóðar upp á um 150 þúsund ís­lensk­ar krón­ur, en þær vill hann ekki greiða þar sem hann seg­ir gjörðir sín­ar ekki glæp­sam­leg­ar.

„Við söfnuðum upp­lýs­ing­um og það er skylda mín sem blaðamaður að sýna al­menn­ingi nei­kvæð áhrif fisk­eld­is á líf­kerfið,“ skrif­ar Fröd­in í yf­ir­lýs­ingu.

Á mynd­efni blaðamanns­ins má meðal ann­ars sjá sýkta og af­myndaða laxa og mun hann stefna á birt­ingu þess næsta vor, sam­kvæmt um­fjöll­un norska frétta­vefs­ins iLaks.

„Um leið og upp­lýs­ing­ar bár­ust um aðstæðurn­ar í fisk­eld­inu í Altaf­irði, þá hafði ég ekk­ert val. Við þurft­um að brjóta lög­in til að skrá­setja ástandið.“

Fröd­in á að mæta fyr­ir rétt­inn 2. nóv­em­ber.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina