„Þetta getur varla staðist“

Auglýsing sjóðsins, sem fékk að vera uppi í komusalnum í …
Auglýsing sjóðsins, sem fékk að vera uppi í komusalnum í tíu daga. Ljósmynd/IWF

Synj­un Isa­via um birt­ingu aug­lýs­ing­ar í Flug­stöð Leifs Ei­ríks­son­ar, þar sem full­yrt er að stöðva þurfi áform fjölþjóðlegra stór­fyr­ir­tækja um lax­eldi á Íslandi, fel­ur í sér beina at­lögu að tján­ing­ar­frels­inu. Þetta seg­ir talsmaður sjóðsins, Jón Kal­dal, í sam­tali við 200 míl­ur.

„Þetta get­ur varla staðist, að Isa­via, sem heim­il­ar aug­lýs­ing­ar í sínu op­in­bera rými, geti tak­markað með þess­um hætti hvaða efni fer þar upp. Ekki síst vegna þess að við telj­um boðskap aug­lýs­ing­ar­inn­ar mik­il­væg­an og að hann eigi er­indi við al­menn­ing.“

Málið á upp­runa sinn að rekja til þeirr­ar ákvörðunar Isa­via í júní­mánuði að taka niður skilti sjóðsins úr komu­sal flug­stöðvar­inn­ar. Þá hafði skiltið aðeins fengið að vera uppi í tíu daga.

Í yf­ir­skrift aug­lýs­ing­ar­inn­ar sagði að Ísland væri síðasta vígi villta Atlants­hafslaxa­stofns­ins. Í fram­hald­inu var full­yrt að fjölþjóðleg stór­fyr­ir­tæki hygðust tí­falda lax­eldi í sjókví­um í ís­lensk­um fjörðum. Áformin myndu menga firðina gíf­ur­lega og að sá eld­islax sem slyppi myndi leiða til erfðablönd­un­ar í villta ís­lenska laxa­stofn­in­um og á end­an­um leiða til þess að stofn­inn dæi út.

„Þessi áform þarf að stöðva,“ sagði svo í niður­lagi text­ans.

Sjóðurinn skoðar nú hvernig bregðast skuli við synjun Isavia.
Sjóður­inn skoðar nú hvernig bregðast skuli við synj­un Isa­via. mbl.is/​Helgi Bjarna­son

Tvær full­yrðing­ar brutu gegn siðaregl­un­um

Op­in­bera hluta­fé­lagið sagði aug­lýs­ing­una brjóta í bága við siðaregl­ur Sam­bands ís­lenskra aug­lýs­inga­stofa, SÍA. Enn frem­ur hefði hún verið sett upp í leyf­is­leysi.

Sjóður­inn vísaði mál­inu til siðanefnd­ar SÍA og gaf nefnd­in út álit sitt 26. sept­em­ber, eft­ir að hafa meðal ann­ars farið yfir gögn sem sjóður­inn lagði fram til stuðnings full­yrðing­um sín­um. Kemst nefnd­in þar að þeirri niður­stöðu að fram­setn­ing aug­lýs­ing­ar­inn­ar hafi ekki brotið gegn 12. grein siðareglna sam­bands­ins, en í henni er kveðið á um að ekki megi „hall­mæla nein­um ein­stak­lingi eða hópi ein­stak­linga, fyr­ir­tæki, sam­tök­um, iðnaðar- eða versl­un­ar­starf­semi, starfs­grein eða vöru, með það fyr­ir aug­um að kalla fram op­in­bera fyr­ir­litn­ingu eða hæðni“.

Nefnd­in mat það hins veg­ar svo að tvær full­yrðing­ar brytu gegn 8. grein siðaregln­anna, en í henni er mælt fyr­ir um að þegar notaðar séu í aug­lýs­ing­um „lýs­ing­ar, full­yrðing­ar eða teikn­ing­ar sem eru sann­an­leg­ar staðreynd­ir ætti að vera hægt að ganga úr skugga um hvort þær séu rétt­ar. Þannig staðfest­ing­ar eiga að vera aðgengi­leg­ar þannig að hægt sé að leggja fram sann­an­ir taf­ar­laust sam­kvæmt beiðni hjá þeim sjálfs­eft­ir­lits­sam­tök­um sem bera ábyrgð á fram­kvæmd siðaregln­anna“.

Ann­ars veg­ar væri um að ræða þá full­yrðingu að Ísland væri síðasta vígi Atlants­hafslax­ins og hins veg­ar full­yrðingu um að aukn­ing lax­eld­is í opn­um sjókví­um myndi leiða til út­rým­ing­ar hinna ein­stöku villtu laxatofna Íslands.

Ný útgáfa auglýsingarinnar, sem Isavia hefur hafnað að setja upp …
Ný út­gáfa aug­lýs­ing­ar­inn­ar, sem Isa­via hef­ur hafnað að setja upp í flug­stöðinni. Teikn­ing/​IWF

„Deilu­mál í ís­lensku þjóðlífi“

Í kjöl­far niður­stöðu nefnd­ar­inn­ar lét sjóður­inn gera nýja út­gáfu af skilt­inu, þar sem dregið var úr og sett­ir fyr­ir­var­ar við þann hluta text­ans sem siðanefnd­in hafði fundið að. Óskaði Jón eft­ir því við Isa­via hinn 5. októ­ber að fá samþykki fyr­ir birt­ingu þeirr­ar aug­lýs­ing­ar í flug­stöðinni.

Í svari Isa­via, sem sent var Jóni 24. októ­ber, er full­yrt að aug­lýs­ing­in hafi verið tek­in niður þar sem hún hafi farið upp í leyf­is­leysi á sín­um tíma. Ljóst sé þá að aug­lýs­ing sjóðsins fjalli um „viðkvæmt mál­efni sem er mikið deilu­mál í ís­lensku þjóðlífi og stjórn­mál­um nú um stund­ir“.

Isa­via muni því ekki heim­ila að aug­lýs­ing­in verði sett upp í flug­stöðinni.

„Það sama gild­ir um all­ar aug­lýs­ing­ar sama eðlis, al­gjör­lega óháð mál­efn­um eða þeirri af­stöðu sem fram í þeim kem­ur.“

„Eng­in óskastaða“

Jón seg­ist ósátt­ur við þessa niður­stöðu Isa­via.

„Aug­lýs­ing­in snýst um að lax­eldi í sjókví­um sé meng­andi iðnaður, sem ógn­ar bæði um­hverfi og líf­ríki Íslands. Við telj­um það varða al­manna­hags­muni, að flest­ir átti sig á þeirri stöðu.“

Sjóður­inn skoði nú hvernig bregðast skuli við synj­un Isa­via.

„Við reikn­um frek­ar með því að við mun­um láta reyna á þessa ákvörðun Isa­via með ein­hverj­um hætti,“ seg­ir Jón, og furðar sig einnig á því að fé­lagið haldi því fram að skiltið hafi verið sett upp í leyf­is­leysi, enda hafi það verið sett upp und­ir hand­leiðslu starfs­manns Isa­via á sín­um tíma. Þá hafi bein­lín­is komið fram á fundi með full­trú­um Isa­via að skiltið hafi verið tekið niður eft­ir að ábend­ing barst sem sneri að efnis­tök­um þess.

„En þetta er eng­in óskastaða. Isa­via er eng­inn óvin­ur Icelandic Wild­li­fe Fund. Við telj­um þetta ein­fald­lega skjóta skökku við, þar sem alls kyns fyr­ir­tæki hafa aug­lýst þarna með svipuðum hætti. Ég átta mig ekki á því af hverju þau kjósa að taka þetta mál svona upp gagn­vart okk­ur.“

mbl.is