Stefnt er að því að hægt verði að greina erfðablöndun eldislaxa og villtra laxa með meira öryggi en nú þekkist á Íslandi. Vonast er til að nýtt svokallað erfðamarkasett, sem er í þróun hjá Matís, muni nýtast til greiningar á erfðablöndun umfram fyrstu kynslóð blendinga.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef opinbera hlutafélagsins. Segir þar að settið muni einnig gegna lykilhlutverki í áhættumati Hafrannsóknastofnunar vegna vöktunar á erfðablöndun og greiningu á langtímaáhrifum erfðablöndunar á íslenska laxastofna.
Þróunarverkefnið er samstarf Matís, Hafrannsóknastofnunar og NINA, norsku náttúrurannsóknastofnunarinnar, og er styrkt af Umhverfissjóði sjókvíaeldis.