Jón Eðvald hættir hjá FISK Seafood

Jón Eðvald Friðriksson hefur starfað hjá FISK Seafood í 22 …
Jón Eðvald Friðriksson hefur starfað hjá FISK Seafood í 22 ár. mbl.is/Sigurður Bogi

Jón Eðvald Friðriksson, framkvæmdastjóri FISK Seafood, hefur látið af störfum. Hefur Friðbjörn Ásbjörnsson, aðstoðarframkvæmdastjóri, tekið við starfi framkvæmdastjóra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá FISK Seafood, en í henni segir að Jón Eðvald hafi starfað hjá félaginu í 22 ár og stýrt kröftugri uppbyggingu þess og daglegum rekstri af mikilli elju. Stjórn fyrirtækisins þakkar honum farsælt og gott starf, og óskar Friðbirni um leið velfarnaðar í nýju starfi.

mbl.is