Fá rekstrarleyfi til bráðabirgða

Kvíar Fjarðalax í Patreksfirði.
Kvíar Fjarðalax í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalax hf. hafa fengið rekstr­ar­leyfi til bráðabirgða til 10 mánaða fyr­ir lax­eldi í sjókví­um í Pat­reks­firði og Tálknafirði, sam­kvæmt ákvörðun sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra.

Mat­væla­stofn­un hafði veitt fyr­ir­tækj­un­um rekstr­ar­leyfi í lok árs 2017 en úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála fellt þau úr gildi 27. sept­em­ber.

Með breyt­ing­um sem gerðar voru á lög­um um fisk­eldi í síðasta mánuði var ráðherra veitt heim­ild, að feng­inni um­sögn Mat­væla­stofn­un­ar, að gefa út tíma­bundið rekstr­ar­leyfi til allt að 10 mánaða.

Við ákvörðun leyf­is til Arctic Sea Farm og Fjarðalax var óskað eft­ir um­sögn­um frá Mat­væla­stofn­un, Byggðastofn­un,  Skipu­lags­stofn­un og Um­hverf­is­stofn­un. Jafn­framt var and­mæl­end­um veitt tæki­færi til að koma sín­um sjón­ar­miðum á fram­færi.

Rekstr­ar­leyf­in sem veitt eru til bráðabirgða eru bund­in ákveðnum skil­yrðum, m.a. skal Mat­væla­stofn­un hafa eft­ir­lit með fjölda út­settra laxa­seiða, leyf­is­hafi ber ábyrgð á vökt­un og rann­sókn­um til að meta vist­fræðileg áhrif á nán­asta um­hverfi og leyf­is­hafa ber skylda til að nota erfðavísa þannig að unnt sé að rekja upp­runa eld­islaxa til ákveðinna sjókvía­eld­is­stöðva.

Auk þess ber fyr­ir­tækj­un­um að hefjast þegar handa við að bæta úr þeim göll­um sem úr­sk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlind­ar­mála taldi vera á málsmeðferð  við út­gáfu rekstr­ar­leyf­is­ins sem ógilt var og/​eða láta reyna á lög­mæti ógild­ingu þeirra fyr­ir dóms­stól­um.

mbl.is