Á haustin færum við okkur gjarnan yfir í dekkri liti og sterkari ilmvötn. Þessar árstíðarbreytingar eru sérlega áberandi í ár þegar kemur að herrailmvötnum en kraftmeiri og þéttari útgáfur af vinsælum herrailmvötnum ráða för á markaðnum nú.
Chanel Bleu de Chanel Parfum
Einn allra besti herrailmur síðari ára er án efa Bleu de Chanel og nú kemur hann í parfum-útgáfu. Kraftmikill og fágaður ilmur sem býr þó yfir ferskleika sem blandast tónum sedrus- og sandalsviðar.
Dolce & Gabbana The One Grey
Fersk krydd, gráir viðartónar og blæbrigði af tóbaki einkenna nýjustu útgáfu Dolce & Gabbana af The One. Game of Thrones-stjarnan Kit Harington er andlit ilmsins og verður að segjast að herferðin sé sérlega glæsileg.
Yves Saint Laurent Y Eau de Parfum
Tælandi og ilmandi túlkun Yves Saint Laurent af hinni auðkennandi samsetningu tískuhússins á hvítum bol og svörtum jakka. Djúpur, ferskur og kryddaður ilmur en upprunalegi ilmurinn var hannaður fyrir nýja kynslóð karlmanna sem eru skapandi og láta til sín taka.
Boss The Scent Private Accord
Hlýr, kryddaður og djúpur herrailmur með austrænu yfirbragði sem verður ávanabindandi. Glæsilegur ilmurinn einkennist af engiferi, mokka, kakóbaunum og viðartónum.
Prada Luna Rossa Black
Luna Rossa-herrailmurinn frá Prada hefur notið gífurlegra vinsælda en ilmurinn er innblásinn af Luna Rossa-siglingakeppninni sem Prada stendur fyrir. Luna Rossa Black kemur skiljanlega í kolsvörtu ilmglasi sem endurspeglar vel kryddaðan og djúpan ilminn.