Í ár mun ég láta hefðbundið jólaskraut eiga sig og líklega mun ég leyfa manninum mínum að hvíla sig það kvöld sem ég ætlaði að senda hann út í skóg að höggva niður jólatré. Í horninu, þar sem jólatréð átti að standa, mun eldrauð Chanel N°5 Eau de Parfum og fólk mun halda að sjálf jólastjarnan hafi lent í miðri íbúðinni minni.
Hið eilífa ilmvatn mætir eftirlætislit Gabrielle Chanel en nú fyrir jólin koma af Chanel N°5 Eau de Parfum og Chanel N°5 L’Eau í eldrauðum 100 ml glerflöskum. Takmarkað upplag mun koma í verslanir og þessi tímabundna útgáfa mun því vera tímalaus safngripur. Þegar Chanel N°5 Eau de Parfum kom fyrst út þótti það marka tímamót sökum notkunar á aldehýð, sem skapar lagkennda margbreytni í ilmvatninu. Ilmur af rósum og jasmín fylgja svo á eftir ásamt björtum sítrustónum. Mjúk snerting Bourbon-vanillu einkennir skapar svo munúðarfullan ilmslóða. Chanel N°5 L’Eau er síðan ferskari útgáfa af hinu upprunalega ilmvatni þar sem sítrusávextir skapa ákveðna dýnamík ásamt Ylang-Ylang.
Til að fullkomna upplifunina væri sniðugt að para rauðan varalit úr jólalínu Chanel við rautt ilmvatnsglasið.
Fylgstu með bak við tjöldin:
Instagram: @snyrtipenninn
Facebook: Snyrtipenninn