Helgi hættir sem framkvæmdastjóri Laxa

Fyrirtækið rekur sjókvíaeldi í Reyðarfirði.
Fyrirtækið rekur sjókvíaeldi í Reyðarfirði. mbl.is/Golli

Helgi G. Sig­urðsson hef­ur látið af störf­um sem fram­kvæmda­stjóri Laxa fisk­eld­is. Í svari við fyr­ir­spurn 200 mílna seg­ist hann vera að stíga til hliðar af per­sónu­leg­um ástæðum.

„Híns veg­ar mun ég starfa áfram hjá Löx­um og það eru mörg spenn­andi verk­efni fram und­an,“ seg­ir Helgi, sem mun sinna viðskiptaþró­un­ar­verk­efn­um og með þeim hætti gegna áfram lyk­il­hlut­verki í upp­bygg­ing­ar­starfi fyr­ir­tæk­is­ins.

Grét­ar Elías Finns­son, fjár­mála­stjóri Laxa, mun taka tíma­bundið við starfi fram­kvæmda­stjóra á meðan stjórn fé­lags­ins finn­ur fé­lag­inu fram­kvæmda­stjóra til framtíðar.

Lax­ar fisk­eldi er með starfs­stöðvar á þrem­ur stöðum á Suður­landi og rek­ur sjókvía­eldi í Reyðarf­irði. Starf­semi og um­svif Laxa fisk­eld­is hafa auk­ist hratt á síðustu miss­er­um og er fyr­ir­tækið nú að ala fjór­ar kyn­slóðir laxa.

mbl.is