Lítið virðist vanta á leyfi til að flytja út eldislax til Kína

Víkingur Gunnarsson og Sigurður Pétursson kynntu íslenskan lax á stórri …
Víkingur Gunnarsson og Sigurður Pétursson kynntu íslenskan lax á stórri sjávarútvegssýningu í Kína í mánuðinum. Þá vantaði þó fisk til að sýna.

Lítið virðist vanta á leyfi til að flytja ís­lensk­ar eldisaf­urðir á Kína­markað. Full­trú­ar lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna Arn­ar­lax og Arctic Fish og ís­lenski sendi­herr­ann áttu ný­lega fund með kín­verska land­búnaðarráðherr­an­um til að ýta á eft­ir því að fríversl­un­ar­samn­ing­ur ríkj­anna yrði virk­ur fyr­ir eldisaf­urðir.

Sendi­herr­ann hef­ur fylgt mál­inu eft­ir og nú stend­ur til að Guðlaug­ur Þór Þórðar­son ut­an­rík­is­ráðherra fari til Kína eft­ir ára­mót til að ganga frá skil­yrðum inn­flutn­ings­ins, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

Sendi­nefnd frá Kína kom til Íslands á síðasta ári til að taka út afurðir og pökk­un­ar­stöðvar fyr­ir lax og einnig eft­ir­litið hjá Mat­væla­stofn­un. Sig­urður Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Arctic Fish, seg­ir að fram­leiðslan hafi fengið já­kvæða um­sögn en ekki hafi enn tek­ist að klára málið.

Sig­urður og Vík­ing­ur Gunn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri hjá Arn­ar­laxi, fóru á stóra sjáv­ar­út­vegs­sýn­ingu í Kína í byrj­un mánaðar­ins. Notuðu þeir ferðina til að ýta á leyf­is­mál­in. Þegar út­flutn­ing­ur hefst frá Íslandi verður hann án tolla. Sig­urður seg­ir að gott verð fá­ist fyr­ir eldisaf­urðir í Kína, ekki síðra en þekk­ist á öðrum mörkuðum. Ekki á Sig­urður von á því að inn­flutn­ing­ur verði tak­markaður, þegar til hans kem­ur, eins og til dæm­is inn­flutn­ing­ur á sauðfjár­af­urðum til Kína.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: