Fiskeldisfyrirtækin fá undanþágu

Fiskeldiskví við Hlaðseyri í Patreksfirði.
Fiskeldiskví við Hlaðseyri í Patreksfirði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Um­hverf­is- og auðlindaráðherra hef­ur veitt fyr­ir­tækj­un­um Arctic Sea Farm hf. og Fjarðalaxi hf. tíma­bundna und­anþágu frá kröfu um starfs­leyfi, með skil­yrðum. Arctic Sea Farm hf. er þar með veitt heim­ild til að fram­leiða 600 tonn ár­lega og Fjarðalaxi hf. 3.400 tonn ár­lega af laxi í sjókví­um í Pat­reks­firði og Tálknafirði.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráðinu en í henni seg­ir að und­anþág­urn­ar muni falla úr gildi í síðasta lagi 5. sept­em­ber á næsta ári.

Gert ráð fyr­ir um­fangs­minni starf­semi

Bent er á að ráðuneytið veiti und­anþág­urn­ar á grund­velli ákvæða laga nr. 7/​1998 um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varn­ir og reglu­gerðar nr. 550/​2018 um los­un frá at­vinnu­rekstri og meng­un­ar­varna­eft­ir­lit.

Gert er um leið ráð fyr­ir mun um­fangs­minni starf­semi fyr­ir­tækj­anna en þau óskuðu eft­ir í beiðni sinni um und­anþágu og sem starfs­leyfi Um­hverf­is­stofn­un­ar tók til, en starfs­leyf­in voru felld úr gildi í októ­ber sl. með úr­sk­urði úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála.

Und­anþág­urn­ar bundn­ar skil­yrðum

Tekið er fram að fyr­ir­tækj­un­um sé gert skylt að fylgja þeim skil­yrðum sem fram komi í fyrr­greind­um starfs­leyf­um og þeim um­hver­fis­kröf­um sem komi fram í áliti Skipu­lags­stofn­un­ar um mat á um­hverf­isáhrif­um vegna fram­kvæmd­ar­inn­ar.

„Þá eru und­anþág­urn­ar bundn­ar þeim skil­yrðum að fyr­ir­tæk­in vinni með virk­um hætti að því að bæta úr ann­mörk­um á um­hverf­is­mati vegna fram­kvæmd­anna og gera ráð fyr­ir að starf­sem­inni sé haldið í lág­marki til að draga sem mest úr um­hverf­isáhrif­um og meng­un sem henni fylg­ir,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Við af­greiðslu máls­ins hafi verið aflað um­sagna frá Skipu­lags­stofn­un, Um­hverf­is­stofn­un og Mat­væla­stofn­un, sem mælt hafi með því að fyr­ir­tækj­un­um yrði veitt tíma­bund­in und­anþága frá starfs­leyfi.

mbl.is