Furðar sig á kæru Landverndar

Sigurður bendir á að hann hafi fylgst með starfi samtakanna …
Sigurður bendir á að hann hafi fylgst með starfi samtakanna lengi. mbl.is/Árni Sæberg

Erfitt er að skilja mark­mið Land­vernd­ar með kæru sam­tak­anna til ESA, sem varðar samþykki Alþing­is til að veita sjáv­ar­út­vegs­ráðherra heim­ild til fram­leng­ing­ar fisk­eld­is­leyfa. Þetta seg­ir Sig­urður Pét­urs­son, stofn­andi lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arctic Fish, í opnu bréfi til Auðar Önnu Magnús­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra Land­vernd­ar.

Sig­urður seg­ir í bréf­inu, sem jafn­framt hef­ur borist 200 míl­um, að ástæða skrif­anna sé ósk hans um að fá fund með Auði, til að öðlast betri skiln­ing á verk­efna­vali Land­vernd­ar og kynna fyr­ir hana starf­semi Arctic Fish á Vest­fjörðum.

Bend­ir hann á að hann hafi fylgst með starfi sam­tak­anna lengi og tekið þátt í verk­efn­um sem teng­ist starf­semi þeirra, en eigi erfitt með að skilja verk­efna­val sam­tak­anna að und­an­förnu.

Seiðaflutningaskipið Viking Saga flytur seiði úr eldisstöð Arctic Fish í …
Seiðaflutn­inga­skipið Vik­ing Saga flyt­ur seiði úr eld­is­stöð Arctic Fish í botni Tálkna­fjarðar í sjókvía­eldi fyr­ir­tæk­is­ins í Dýraf­irði. mbl.is/​Guðlaug­ur Al­berts­son

Vottað sam­kvæmt strangasta um­hverf­isstaðlin­um

Ég er meðvitaður um stefnu ykk­ar um „að standa vörð um ís­lenska nátt­úru og vera virk­ur þátt­tak­andi í stefnu­mót­un, fræðslu og upp­lýstri ákv­arðana­töku í mál­um er varða land­notk­un, auðlind­ir og um­hverfi.“ Í ljósi þessa er erfitt að skilja mark­mið með kæru ykk­ar til ESA á því að Alþingi samþykkti að veita sjáv­ar­út­vegs­ráðherra sam­bæri­lega heim­ild og um­hverf­is­ráðherra hef­ur nú þegar varðandi fram­leng­ingu fisk­eld­is­leyfa,“ skrif­ar Sig­urður, sem í dag er fram­kvæmda­stjóri viðskiptaþró­un­ar Arctic Fish.

„Vest­f­irðir hafa fyr­ir mörg­um árum mótað sér stefnu um að vera stóriðju­laus lands­hluti, eru um­hverf­is­vottaðir í sam­ræmi við Eart­hCheck og því eru um­hverf­is­mál mik­il­væg Vest­f­irðing­um,“ skrif­ar hann og bæt­ir við að fisk­eldi í sjó sé ein um­hverf­i­s­væn­asta mat­væla­fram­leiðsla sem völ sé á, með mjög lágu kol­efn­is­fót­spori.

„Arctic Fish er auk þess vottað í sam­ræmi við ASC (Aquacult­ure Stew­ards­hip Council) staðal­inn sem er strangasti um­hverf­isstaðall­inn fyr­ir lax­eldi sem völ er á. Þá hef­ur Alþingi skil­greint Vest­f­irði sem svæði fyr­ir fisk­eldi í sjó.“

Kolt­ví­sýr­ings­los­un hæst á Íslandi

Sig­urður bend­ir á að ný­verið hafi komið út skýrsla frá Hag­stofu Íslands, sem sýni að kolt­ví­sýr­ings­los­un sé hæst á Íslandi í sam­an­b­urði við ná­granna­rík­in og að það megi m.a. rekja til flug­sam­gangna.

„Ég sé ekk­ert hvorki í árs­skýrslu ykk­ar né á heimasíðu um verk­efni til þess að mæta þess­um vanda þó að vísu sé nefnd þátt­taka ykk­ar í „aðgerðamiðuðu lofts­lags­verk­efni með ís­lensk­um sveit­ar­fé­lög­um sem miðar að því að aðstoða þau við að draga úr út­los­un gróður­húsaloft­teg­unda.“ Væri ekki ráð að beina kröft­un­um að helsta um­hverf­is­vanda okk­ar þjóðar sem teng­ist loft­meng­un og mæta auk­inni út­los­un gróður­húsalof­teg­unda með kol­efnis­jöfn­un?“ spyr hann.

Skip sem brenna olíu í land­legu

„Ef litið er til nærum­hverf­is á höfuðborg­ar­svæðinu þá falla þar til 240 kg af sorpi á hvern íbúa á ári og af þeim eru 190 kg óflokkuð. Á síðasta ári komu 135 skemmti­ferðaskip á höfuðborg­ar­svæðið sem er tvö­föld­un á 10 árum og öll brenna þau olíu í land­legu frek­ar en að nota raf­magn og í raun virðast ekki vera mörg verk­efni hjá Land­vernd sem snúa að okk­ar stærsta at­vinnu­vegi, ferðamannaiðnaði. Um Faxa­flóa­sundið ferðast skip með kol sem notuð eru í málmiðnaði hér við land og ekki hef ég orðið var við há­vær mót­mæli Land­vernd­ar í þess­um mála­flokki held­ur,“ skrif­ar Sig­urður.

„Ég get í raun haldið áfram að fjalla um um­hverf­is­mál og verk­efni tengd þeim enda mál­efnið mér kært, en hefði frem­ur vilja ræða það á fundi okk­ar. Einnig lang­ar mig að vita hvort horft sé til alþjóðlegra mark­miða líkt og þau sem stofn­an­ir Sam­einuðu þjóðanna hafa sett sér þegar um­hverf­is­verk­efni Land­vernd­ar eru val­in?“

mbl.is