SUS kallar eftir rannsókn á Seðlabankanum

Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Stjórn Sam­bands ungra sjálf­stæðismanna (SUS) kall­ar eft­ir því að óháð rann­sókn fari fram á stjórn­sýslu Seðlabanka Íslands (SÍ) í tengsl­um við málsmeðferðir, kær­ur og sátt­ir sem bank­inn hef­ur átt þátt í vegna meintra brota á gjald­eyr­is­lög­um, en sterk­ar vís­bend­ing­ar eru uppi um að bank­inn hafi mis­beitt sér við rann­sókn mála er vörðuðu meint brot gegn gjald­eyr­is­lög­um,“ seg­ir í frétta­til­kynn­ingu.

„Stjórn SUS tel­ur mik­il­vægt að rann­sókn­in verði fram­kvæmd af óháðum aðila sem er ekki tengd­ur SÍ. Ekki síst vegna þess að nauðsyn­legt er að end­ur­reisa traust SÍ, einn­ar æðstu stofn­un­ar rík­is­ins, enda jafn­framt um að ræða eina vold­ug­ustu stofn­un þess. Í því skyni þarf að upp­lýsa um og rann­saka þær fjöl­mörgu ásak­an­ir sem hafa verið sett­ar fram síðastliðin ár, ým­ist í viðtöl­um, blaðagrein­um og jafn­vel heil­um bók­um sem hafa verið skrifaðar um mis­ferli í stjórn­sýslu gjald­eyris­eft­ir­lits SÍ.

SÍ hef­ur rekið rann­sókn­ir jafnt inn­an­húss sem og í fjöl­miðlum, ein­stak­ling­um og fyr­ir­tækj­um til mik­ils skaða. Þá eru dæmi um að sekt­ir hafi verið lagðar á lögaðila án full­nægj­andi laga­heim­ild­ar og að hald­lagn­ing gagna hafi verið grund­völluð á röng­um út­reikn­ing­um. Mál hafi svo verið rek­in svo árum skipt­ir án þess að rann­sókn hafi þokast áfram með til­heyr­andi óvissu fyr­ir viðkom­andi aðila. Fjöl­mörg önn­ur dæmi má nefna en nauðsyn­legt er að aðhaf­ast þegar ein æðsta stofn­un rík­is­ins er bor­in sök­um sem þess­um. 

Að lok­um er til­efni til þess að rann­saka aug­ljóst sam­starf SÍ og Rík­is­út­varps­ins við rann­sókn mála, þar sem upp­lýs­ing­um var ber­sýni­lega lekið til fjöl­miðla til þess að auka hróður SÍ á kostnað þeirra sem voru und­ir rann­sókn,“ seg­ir enn frem­ur í til­kynn­ingu SUS.

Andri Steinn Hilmarsson, varaformaður SUS, Ingvar Smári Birgisson formaður og …
Andri Steinn Hilm­ars­son, vara­formaður SUS, Ingvar Smári Birg­is­son formaður og Sig­ríður Erla Sturlu­dótt­ir, 2. vara­formaður SUS.
mbl.is