Ósamþykkt aukefni í fiskeldisfóðri

Óprófuðu aukefnin reyndust vera í fiskeldisfóðri frá Skretting.
Óprófuðu aukefnin reyndust vera í fiskeldisfóðri frá Skretting. mbl.is/Helgi Bjarnason

Fóður með aukefni frá Kína sem ekki hef­ur hlotið samþykki Evr­ópu­sam­bands­ins var notað í fisk­eldi hér á landi og í dýra­fóður í lönd­um Evr­ópu. Þegar Mat­væla­stofn­un fékk til­kynn­ingu frá ESB var búið að nota fóðrið. Ekki þótti ástæða til að grípa til sér­stakra ráðstaf­ana enda neyt­end­um ekki hætta búin.

Aukefnið er B2 víta­mín sem fram­leitt er úr erfðabreytt­um bakt­erí­um í Kína. Fram­leiðslan hef­ur ekki farið í gegn um ör­yggis­próf­un heil­brigðis­yf­ir­valda í Evr­ópu og því ekki leyfi­legt að nota hana í fóður.

Víta­mínið er notað sem aukefni í fóður. Til­tölu­lega lítið magn hef­ur því áhrif á stóra farma, senni­lega yfir millj­ón tonn alls. Stórt fyr­ir­tæki í Hollandi sem bland­ar sam­an aukefn­um og sel­ur til fóður­fram­leiðanda notaði þetta víta­mín. Fóðrinu var dreift víða um Evr­ópu. Þegar málið kom upp voru birgðir innkallaðar.

Hingað kom send­ing frá norska fóður­fram­leiðand­an­um Skrett­ing og var fóðrið notað við fisk­eldi hjá tveim­ur fyr­ir­tækj­um, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá Mat­væla­stofn­un.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: