HB Grandi skoðar sölu á Þerney

Flotinn í höfn. Ár er síðan gamla Þerney sigldi áleiðis …
Flotinn í höfn. Ár er síðan gamla Þerney sigldi áleiðis til Suður-Afríku. mbl.is/Þröstur Njálsson

HB Grandi skoðar nú mögu­lega sölu á frysti­tog­ar­an­um Þer­ney, sem er í smíðum fyr­ir út­gerðina á Spáni. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá fé­lag­inu, þar sem greint er frá minnk­andi hagnaði fyrstu níu mánuði árs­ins í sam­an­b­urði við sama tíma­bil í fyrra.

Í skipa­stól út­gerðar­inn­ar voru átta skip í lok sept­em­ber síðastliðnum. Þegar hafa 200 míl­ur greint frá upp­sögn­um skip­verja um borð í Helgu Maríu AK. Hef­ur fram­kvæmda­stjóri HB Granda, Ægir Páll Friðberts­son, sagt að óvissa sé inn­an út­gerðar­inn­ar um hvað gera skuli við skipið.

Ár er síðan gamla Þer­ney sigldi áleiðis til Suður-Afr­íku, eft­ir að hafa verið seld þangað.

Í upp­gjöri kem­ur fram að hagnaður HB Granda á þriðja fjórðungi 2018 nam 8,2 millj­ón­um evra, eða tæp­um 1,2 millj­örðum ís­lenskra króna. Það er lækk­un miðað við sama tíma á síðasta ári þegar hagnaður nam 11,6 millj­ón­um evra, eða rúm­lega 1,6 millj­örðum króna.

Tekj­ur fé­lags­ins á fjórðungn­um námu tæp­um 50 millj­ón­um evra, eða tæp­um sjö millj­örðum króna. Á sama tíma á síðasta ári voru tekj­urn­ar tals­vert hærri, eða 62 millj­ón­ir evra, um 8,8 millj­arðar króna.

Eig­in­fjár­hlut­fall lækk­ar

Heild­ar­eign­ir fé­lags­ins námu 533,4 millj­ón­um evra í lok sept­em­ber 2018, sem jafn­gild­ir um 75,5 millj­örðum króna. Eigið fé nam 258,7 millj­ón­um evra, eða 36,6 millj­örðum króna, og eig­in­fjár­hlut­fall í lok sept­em­ber var 48,5%, en var 51,6% í lok árs 2017.

Sé horft til fyrstu níu mánaða árs­ins var hagnaður fé­lags­ins 11,2 millj­ón­ir evra, eða 1,6 millj­arðar króna, sam­an­borið við 17,3 millj­ón­ir evra á sama tíma­bili á síðasta ári.

Rekstr­ar­tekj­ur á tíma­bil­inu námu 149,2 millj­ón­um evra sam­an­borið við 158,8 millj­ón­ir árið áður.

mbl.is