Kæra skyndibreytingu laga um fiskeldi til ESA

Höfuðstöðvar ESA í Brussel.
Höfuðstöðvar ESA í Brussel.

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands, Nátt­úru­vernd­ar­fé­lagið Lax­inn lifi, Vernd­ar­sjóður villtra laxa­stofna (NASF), um­hverf­is­sjóður­inn Icelandic Wild­li­fe Fund, Lands­sam­band veiðifé­laga og Stanga­veiðifé­lag Reykja­vík­ur, hafa ásamt sex eig­end­um laxveiðirétt­ar sent kvört­un til Eft­ir­lits­stofn­un­ar EFTA (ESA) vegna ný­legr­ar skyndilaga­breyt­ing­ar á lög­um um fisk­eldi.

Þetta kem­ur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Nátt­úr­vernd­ar­sam­tök­un­um, sem segja meira en 15.000 manns standa að baki kær­unni.

Lög­in voru sett í til­efni af ógild­ingu á úr­sk­urðum úr­sk­urðar­nefnd­ar um­hverf­is- og auðlinda­mála á fjór­um lax­eld­is­leyf­um á sunn­an­verðum Vest­fjörðum. „Um­hverf­is­mat fyr­ir starf­sem­ina fékk fall­ein­kunn nefnd­ar­inn­ar, þar sem aðeins einn val­kost­ur var skoðaður. Að skoða mis­mun­andi val­kosti er einn af lyk­ilþátt­um í ákvörðunum um hvort leyfa á starf­semi sem skaðar um­hverfið,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Í kær­unni einnig  gerð at­huga­semd við ný­út­gef­in bráðabirgðarekstr­ar­leyfi sjáv­ar­út­vegs­ráðherra og ný­veitt­ar und­anþágur um­hverf­is­ráðherra fyr­ir sömu starf­semi.

„Að mati kær­end­anna eru bæði lög­in og fram­kvæmd þeirra skýrt brot á rétti um­hverf­is­vernd­ar­sam­taka til að bera ákv­arðanir stjórn­valda und­ir dóm­stól eða ann­an óháðan og sjálf­stæðan úr­sk­urðaraðila — og ekki síður á rétti al­menn­ings til þátt­töku í mál­um sem varða um­hverfið.“

Stjórn­ar­frum­varp sjáv­ar­út­vegs­ráðherra sem Alþingi af­greiddi sam­dæg­urs sem lög hafi miðað að því „að gera að engu úr­sk­urði hinn­ar sjálf­stæðu og óháðu úr­sk­urðar­nefnd­ar“, auk þess sem það kippi kæru­rétti um­hverf­is­vernd­ar­sam­taka og annarra sam­taka al­menn­ings úr sam­bandi. Er slíkt brot á EES-samn­ingn­um að mati kær­enda, enda hafi eng­in raun­veru­leg skoðun farið fram á þessu við und­ir­bún­ing laga­setn­ing­ar­inn­ar. Né held­ur hafi Alþingi leitaði sjón­ar­miða al­menn­ings, um­hverf­is­vernd­ar­sam­taka eða ut­anaðkom­andi sér­fræðinga við meðferð laga­frum­varps sem varðar um­hverfið. 

„Við ákváðum strax að leita til ESA með þetta mál. Við telj­um ein­sýnt að ESA og EFTA-dóm­stóll­inn munu ekki líða brot á regl­um sem varða þátt­töku­rétt al­menn­ings í um­hverf­is­mál­um og rétti um­hverf­is­vernd­ar­sam­taka til að fá úr­lausn dóm­stóls eða úr­sk­urðaraðila,“ er haft eft­ir Árna Finns­syni, for­manni Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands, í til­kynn­ing­unni. 

Einnig er í und­ir­bún­ingi önn­ur kvört­un og verður sú send eft­ir­lits­nefnd með fram­kvæmd Árósa­samn­ings­ins og verður það sú fyrsta sem send verður þeirri nefnd frá Íslandi.

mbl.is