Eldislax við það að hrygna veiddur

Eldislaxarnir tveir ásamt villtum laxi í miðjunni.
Eldislaxarnir tveir ásamt villtum laxi í miðjunni. Ljósmynd/Iceland Review

Feng­ist hef­ur staðfest­ing á því með líf­sýn­um að tveir lax­ar sem ný­lega veidd­ust í Fífustaðadalsá í Arnar­f­irði eru eld­islax af norsk­um upp­runa. Fjallað er um málið á vef Ice­land Review.

Rann­sókn­in var fram­kvæmd af rann­sókn­ar­fyr­ir­tæk­inu Lax­fisk­um og líf­sýn­in send til grein­ing­ar hjá Matís, en lax­eld­is­fyr­ir­tækið Arn­ar­lax er með starf­semi í Arnar­f­irði í sjókví­um. Fyrr á þessu ári slapp um­tals­vert magn af laxi of norsk­um upp­runa úr kví­um þess en ekki er vitað ná­kvæm­lega hversu marg­ir.

Enn frem­ur seg­ir að lax­arn­ir tveir sem veidd­ust hafi verið að því komn­ir að hrygna. Haft er eft­ir Jó­hann­esi Stur­laugs­syni líf­fræðingi að fjór­ir eld­islax­ar hafi veiðst á þessu ári í ís­lensk­um laxveiðiám. Þetta séu hins veg­ar þeir fyrstu sem hafa verið við það að hrygna.

Þetta geti haft ýms­ar mjög al­var­leg­ar af­leiðing­ar fyr­ir villta laxa­stofn­inn í ís­lensk­um ám. Jó­hann­es bend­ir á reynsl­una frá Nor­egi þar sem vilti stofn­inn eigi mjög erfitt upp­drátt­ar jafn­vel þó eld­islax­inn sé af norsk­um upp­runa.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina