Veiðigjaldafrumvarpið samþykkt

Frá þingfundi á Alþingi.
Frá þingfundi á Alþingi. mbl.is/Eggert

Frum­varp Kristjáns Þórs Júlí­us­son­ar, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, til nýrra laga um veiðigjöld hef­ur verið samþykkt á Alþingi með 32 at­kvæðum. Sex­tán þing­menn greiddu at­kvæði gegn frum­varp­inu og tíu sátu hjá.

Þriðju umræðu um frum­varpið lauk á Alþingi í gær­kvöldi en at­kvæðagreiðslu var þá frestað.

Með frum­varp­inu breyt­ist álagn­ing veiðigjalda og hún færð nær í tíma, til að veiðigjöld­in geti bet­ur end­ur­speglað af­komu út­gerðar­inn­ar. Álagn­ing­in verður byggð á árs­göml­um gögn­um í stað um tveggja ára eins og nú. Þá verður veiðigjalds­nefnd lögð niður og úr­vinnsla gagna og álagn­ing færð til rík­is­skatt­stjóra, sam­kvæmt frum­varp­inu.

Meiri­hluti at­vinnu­vega­nefnd­ar lagði til að frum­varpið yrði samþykkt óbreytt eins og það var af­greitt eft­ir aðra umræðu. Nefnd­ar­menn fjög­urra flokka stjórn­ar­and­stöðu lögðust gegn frum­varp­inu og vildu að nú­ver­andi lög yrðu fram­lengd um eitt ár.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina