Íslenskum laxaseiðum fargað

Í eldisstöð Stofnfisks.
Í eldisstöð Stofnfisks. mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Af­brigði af veiru sem fannst í laxa­seiðum úr ís­lensk­um hrogn­um í lax­eld­is­stöð á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna varð til þess að yf­ir­völd ákváðu að láta farga 800 þúsund seiðum.

Um­rædd veira, PRV, er al­geng í laxi um all­an heim, þar á meðal á Íslandi, bæði í villt­um laxi og eld­is­fiski, en hef­ur aldrei valdið sjúk­dóm­um hér svo vitað sé.

Stofn­fisk­ur hef­ur selt Cooke-lax­eld­is­stöðinni í ná­grenni Rochester í Washingt­on-ríki hrogn í nokk­ur ár, síðast í vor. PRV-veira fannst í fisk­in­um í sum­ar, af­brigði sem ekki hef­ur áður verið greint á þess­um slóðum. Þess vegna fyr­ir­skipuðu stjórn­völd slátrun á seiðunum þótt þau væru heil­brigð, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

Í frétta­til­kynn­ingu sem Stofn­fisk­ur hef­ur sent frá sér vegna um­fjöll­un­ar í er­lend­um fréttamiðlum um málið kem­ur fram að PRV-veir­an hjá Cooke kunni að eiga upp­runa sinn í hrogn­um frá Íslandi.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: