Strokulax talinn úr eldi í Hringsdal

Lax sem veiddist í Vatnsdalsá er talinn kominn úr eldi …
Lax sem veiddist í Vatnsdalsá er talinn kominn úr eldi í Laugardal. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Níu lax­ar sem virðast komn­ir úr eldi og hafa veiðst í ís­lensk­um ám hafa verið upp­runa­greind­ir og komu þeir all­ir frá tveim­ur kvía­stæðum, ann­ars veg­ar úr Laug­ar­dal í Tálknafirði og hins veg­ar frá Hrings­dal Arnar­f­irði. Þannig er lax sem veidd­ist í Vatns­dalsá tal­inn kom­inn úr eldi í Laug­ar­dal og lax sem fékkst í Eyja­fjarðará er tal­inn vera úr eldi við Hrings­dal.

Frá þessu er greint á heimasíðu Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, sem hef­ur í sam­vinnu við MAST og Matís unnið að upp­runa­grein­ing­unni. Notuð er svo­kölluð arf­gerðagrein­ing og eru 14 erfðamörk greind og bor­in sama við erfðamörk þeirra hænga sem notaðir voru við fram­leiðslu seiða 2015.

Óvissa með lax úr Breiðdalsá

Á heimasíðu stofn­un­ar­inn­ar seg­ir meðal ann­ars: „Alls virðast hafa veiðst 12 eld­is­fisk­ar, þar af hafa 11 verið greind­ir en einn er enn í mæl­ingu. Af þeim 11 sem hafa verið greind­ir er hægt að rekja níu með vissu, en eitt sýni þarf að end­ur­keyra með nýju erfðar­sýni til að fá af­ger­andi staðfest­ingu. Einn fisk, sem veidd­ist í Breiðdalsá, þarf að skoða frek­ar og er hugs­an­legt að hann hafi komið ann­ars staðar frá. Þeir níu fisk­ar sem hef­ur verið hægt að rekja komu all­ir frá tveim­ur kvía­stæðum, ann­ars veg­ar úr Laug­ar­dal í Tálknafirði og hins veg­ar frá Hrings­dal, Arnar­f­irði.

Til­kynnt hafa verið þrjú at­vik sem stemma við þess­ar staðsetn­ing­ar. Arn­ar­lax til­kynnti at­vik/​strok í Hrings­dal í Arnar­f­irði þann 21. fe­brú­ar sl. og tvö at­vik í Laug­ar­dal í Tálknafirði, annað í fe­brú­ar og hitt í júlí á þessu ári. Svo virðist sem all­ir fisk­arn­ir hafa komið úr til­kynnt­um strok­um.“

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: