Neikvæð áhrif á laxastofna

Forsvarsmenn Laxa fiskeldis hafa gagnrýnt áhættumatið harðlega. Telja þeir að …
Forsvarsmenn Laxa fiskeldis hafa gagnrýnt áhættumatið harðlega. Telja þeir að það sé slíkum annmörkum háð að ekki verði á því byggjandi.

Skipu­lags­stofn­un tel­ur lík­ur á að fyr­ir­huguð aukn­ing lax­eld­is Laxa fisk­eld­is ehf. í Reyðarf­irði um 10 þúsund tonn muni hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á villta laxa­stofna. Grund­vall­ar stofn­un­in álit sitt á mats­skýrslu Laxa á áhættumati Haf­rann­sókna­stofn­un­ar sem ekki hef­ur verið lög­fest.

Skipu­lags­stofn­un birti í gær álit sitt á mats­skýrslu Laxa fisk­eld­is vegna um­hverf­is­mats fyr­ir aukn­ingu lax­eld­is í sjókví­um í Reyðarf­irði úr sex þúsund tonn­um í 16 þúsund tonn. Tel­ur hún að helstu nei­kvæðu áhrif fram­leiðslu­aukn­ing­ar fel­ist í áhrif­um á botn­dýra­líf, auk­inni hættu á að fisk­sjúk­dóm­ar og laxal­ús ber­ist í villta lax­fiska og áhrif­um á villta laxa­stofna vegna erfðablönd­un­ar.

Þá tel­ur stofn­un­in að fyr­ir­huguð eldis­aukn­ing muni hafa nei­kvæð sam­legðaráhrif með öðru, nú­ver­andi og fyr­ir­huguðu, eldi á Aust­fjörðum á villta lax­fiska með til­liti til erfðablönd­un­ar og á lands­lag og ásýnd, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: