Hafró þarf að hagræða um 234 milljónir

Rannsóknarskipið Árni Friðriksson.
Rannsóknarskipið Árni Friðriksson. mbl.is/Sigurður Bogi

Alls vant­ar Haf­rann­sókna­stofn­un 234 millj­ón­ir króna upp á til að hægt sé að halda úti óbreytt­um rekstri.

Vegna hagræðing­ar­kröfu í fjár­lög­um nem­ur niður­skurður hjá stofn­un­inni 84 millj­ón­um króna auk þess sem 150 millj­ón­um króna minna kem­ur til rekstr­ar­ins úr verk­efna­sjóði sjáv­ar­út­vegs­ins en sá sjóður fær tekj­ur af afla sem út­gerðir eiga ekki kvóta fyr­ir.

„Við erum að vona að ein­hver lausn finn­ist á þessu og erum að vinna að því með ráðuneyt­inu. Ef það ger­ist ekki erum við í veru­lega vond­um mál­um,“ seg­ir Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. Hann bend­ir á að meg­in­hluti kostnaðar sé fasta­kostnaður, svo sem til að halda úti tveim­ur rann­sókn­ar­skip­um. Staðan var kynnt á fundi með starfs­fólki í morg­un en RÚV greindi fyrst frá mál­inu.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina