„Hefur mikla þýðingu fyrir okkur“

Vottunin er sögð undirstrika þau markmið að fiskeldið sé stundað …
Vottunin er sögð undirstrika þau markmið að fiskeldið sé stundað á sjálfbæran hátt. mbl.is/Helgi Bjarnason

Lax­eld­is­fyr­ir­tæk­in Arn­ar­lax og Arctic Sea Farm hafa fengið ASC-um­hverf­is­vott­un á fram­leiðslu sína. Um er að ræða eina ströngustu um­hverf­is­vott­un­ina þegar kem­ur að fisk­eldi og er hún þekkt um all­an heim, að því er seg­ir í sam­eig­in­legri til­kynn­ingu fyr­ir­tækj­anna.

Bent er á að all­ur lax sem fram­leidd­ur verði á Vest­fjörðum á þessu ári verði vottaður með þess­um hætti, en bæði Arn­ar­lax og Arctic Sea Farm eru staðsett á Vest­fjörðum.

Hliðstæð MSC-staðlin­um

„Við erum mjög ánægð með að vera kom­in með ASC-um­hverf­is­vott­un. Þetta und­ir­strik­ar mark­mið okk­ar um að stunda fisk­eldi á sjálf­bær­an hátt í sátt við nátt­úru og sam­fé­lag,“ seg­ir Kristian Matti­as­son, fram­kvæmda­stjóri Arn­ar­lax, í til­kynn­ing­unni.

Fram kem­ur að ASC-vott­un­arstaðall­inn hafi meðal ann­ars verið þróaður af nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­un­um World Wild­li­fe Fund ásamt fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­um, en til að fá vott­un þurfi fyr­ir­tæk­in meðal ann­ars að lág­marka um­hverf­isáhrif og starfa í sátt við sam­fé­lag og um­hverfi.

ASC-vott­un sé enn frem­ur hliðstæð MSC-staðlin­um, sem sé þekkt­asti um­hverf­isstaðall­inn fyr­ir sjáv­ar­af­urðir, en ASC-staðall­inn sé aðlagaður eldisaf­urðum. ASC-sam­tök­in sem að baki staðlin­um standa séu þá ekki rek­in í hagnaðarskyni og séu óháð sam­tök.

Forsvarsmenn beggja fyrirtækja segjast ánægðir með að hafa staðist skilyrði …
For­svars­menn beggja fyr­ir­tækja segj­ast ánægðir með að hafa staðist skil­yrði vott­un­ar­inn­ar. Ljós­mynd/​Arctic Sea Farm

Lág­marki áhrif á um­hverfið

„ASC-vott­un­in hef­ur mikla þýðingu fyr­ir okk­ur þar sem okk­ar viðskipta­vin­ir horfa tölu­vert til um­hverf­isáhrifa og gera kröf­ur í þeim efn­um. Við telj­um að þessi áhersla á um­hverf­is­mál skili okk­ur ákveðnu sam­keppn­is­for­skoti til lengri tíma,“ seg­ir Stein Ove Tveiten, fram­kvæmda­stjóri Arctic Sea Farm.

Fyr­ir­tæki sem stand­ast ASC-vott­un skuld­binda sig að lág­marka áhrif á um­hverfið á ýmsa vegu. Taka þarf til­lit til villtra lax­fisk­stofna, fugla, sjáv­ar­spen­dýra og annarra líf­vera sem búa í námunda við eld­is­svæðin.

Sviss­neska vott­un­ar­fyr­ir­tækið Bio Inspecta sá um ASC-út­tekt Arn­ar­lax. „Það er ánægju­legt að búið sé að taka út eld­is­svæði Arn­ar­lax við Haga­nes og Steina­nes og að fisk­ur af þess­um eld­is­svæðum sé vottaður. Núna get­ur Arn­ar­lax boðið viðskipta­vin­um upp á lax sem er al­inn á sjálf­bær­an og skyn­sam­leg­an hátt,“ seg­ir Roger Benz, gæðastjóri Bio Inspecta.

mbl.is