Allt að tuttugu sagt upp fyrir mánaðamót

Höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar að Skúlagötu 4.
Höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar að Skúlagötu 4. mbl.is/Arnþór Birkisson

Allt að tutt­ugu starfs­mönn­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, á skip­um og á landi, verður sagt upp fyr­ir lok þessa mánaðar, verði hagræðing­ar­kröfu stjórn­valda haldið óbreyttri. Þetta staðfest­ir Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri stofn­un­ar­inn­ar, í sam­tali við 200 míl­ur.

Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, sagðist fyrr í dag ekki enn hafa fengið á sitt borð til­lög­ur Sig­urðar, um hvernig stofn­un­in muni bregðast við hagræðing­ar­kröf­unni. Hann vildi því ekki tjá sig um vænt­an­leg­ar upp­sagn­ir stofn­un­ar­inn­ar.

„Ekki fyrr en við höf­um farið yfir þær hug­mynd­ir sem for­stjór­inn legg­ur upp við ráðuneytið, og með hvaða hætti það verði gert. Þess vegna vil ég ekki tjá mig um það að sinni. Ég tel þó að við höf­um alla mögu­leika á því að koma í veg fyr­ir að þess­ar ýtr­ustu hug­mynd­ir gangi eft­ir,“ sagði Kristján og bætti við: „Það hef­ur verið unnið að lausn þessa máls síðastliðnar vik­ur og ég von­ast eft­ir niður­stöðu í þeirri vinnu á allra næstu dög­um.“

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Tvennt sem kom stofn­un­inni að óvör­um

Bjarna Sæ­munds­syni, rann­sókna­skipi Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, verður einnig að óbreyttu lagt fyr­ir fullt og allt í haust, eins og Sig­urður sagði í sam­tali við 200 míl­ur síðdeg­is í gær. 

„Það var eig­in­lega tvennt sem kom okk­ur að óvör­um,“ sagði Sig­urður. 

„Ann­ars veg­ar að dregið sé úr fjár­veit­ingu til verk­efna­sjóðs sjáv­ar­út­vegs­ins, sem hef­ur borgað í kring­um 400 millj­ón­ir á ári af kostnaði við grunn­verk­efni stofn­un­ar­inn­ar. Í fyrra var okk­ur lofað 390 millj­ón­um og hér áður fyrr var um að ræða enn hærri töl­ur. En að lok­um varð tal­an 250 millj­ón­ir, sem var óvænt.“

Hins veg­ar hafi stofn­un­in séð fram á hagræðing­ar­kröfu upp á eitt pró­sent. „En sú krafa var tvö­földuð á milli annarr­ar og þriðju umræðu í þing­inu, og varð því að 84 millj­ón­um króna,“ sagði for­stjór­inn.

„Þá er þetta orðin svo­lít­il glíma.“

Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar.
Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

300 millj­óna hagræðing­ar­krafa

Nefndi hann einnig það sem hann kall­ar inn­byggðan galla í rík­is­kerf­inu. 

„Þegar menn reikna verðlags­bæt­ur og launa­bæt­ur, þá reikna þeir þær á þann hluta starf­semi stofn­un­ar­inn­ar sem er fjár­magnaður af rík­inu. Við erum að velta ein­hverj­um fjór­um millj­örðum og fáum í kring­um þrjá millj­arða frá ríki. Þetta þýðir að sett­ar eru aukn­ar kröf­ur um sér­tekj­ur, en í okk­ar til­felli þá eru sér­tekj­urn­ar nokkuð sem við get­um ekki hækkað, því að mestu er um að ræða sölu á rann­sókn­arafla,“ sagði Sig­urður.

„Það er bara fisk­verð hverju sinni sem ræður þeim tekj­um sem af hon­um fást. Þarna er því dul­in hagræðing sem nem­ur um átta­tíu millj­ón­um í viðbót.“

Þegar allt þetta sé sam­an talið hljóði hagræðing­ar­krafa rík­is­ins upp á um 300 millj­ón­ir króna.

mbl.is