Ekki fengið tillögurnar á sitt borð

Ráðherrann segist taka undir sjónarmið félaganna um mikilvægi hafrannsókna á …
Ráðherrann segist taka undir sjónarmið félaganna um mikilvægi hafrannsókna á Íslandsmiðum. mbl.is/Hari

Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, seg­ist ekki enn hafa fengið á sitt borð til­lög­ur for­stjóra Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, um hvernig stofn­un­in muni bregðast við kröfu stjórn­valda um hagræðingu.

„Ég óskaði eft­ir hug­mynd­um for­stjóra í des­em­ber, um mögu­leg­ar leiðir til að mæta þeirri hagræðing­ar­kröfu sem komið hefði fram,“ seg­ir Kristján Þór í sam­tali við 200 míl­ur. „Það var skömmu fyr­ir jól og við höf­um ein­fald­lega ekki getað farið al­menni­lega yfir málið enn þá. Ég hef ekki enn fengið þær inn á mitt borð.“

Aðspurður seg­ist Kristján Þór ekki vilja tjá sig um vænt­an­leg­ar upp­sagn­ir stofn­un­ar­inn­ar. 

„Ekki fyrr en við höf­um farið yfir þær hug­mynd­ir sem for­stjór­inn legg­ur upp við ráðuneytið, og með hvaða hætti það verði gert. Þess vegna vil ég ekki tjá mig um það að sinni. Ég tel þó að við höf­um alla mögu­leika á því að koma í veg fyr­ir að þess­ar ýtr­ustu hug­mynd­ir gangi eft­ir,“ seg­ir hann og bæt­ir við: „Það hef­ur verið unnið að lausn þessa máls síðastliðnar vik­ur og ég von­ast eft­ir niður­stöðu í þeirri vinnu á allra næstu dög­um.“

Ekki boðleg fjár­mögn­un­ar­leið

Ráðherr­ann bend­ir á að tölu­verður hluti, eða nokk­ur hundruð millj­óna króna, af fjár­mögn­un Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, hafi und­an­far­in ár feng­ist með fjár­fram­lagi úr Verk­efna­sjóði sjáv­ar­út­vegs­ins. Stærst­ur hluti þess niður­skurðar sem blasi við stofn­un­inni nú sé vegna þess að tekj­ur úr sjóðnum hafi dreg­ist veru­lega sam­an á síðastliðnum árum.

„Um er að ræða fjár­muni sem fást vegna upp­töku ólög­mæts sjáv­ar­afla. Í mín­um huga er það ekki boðlegt fyr­ir­komu­lag að stofn­un­in sé háð slíkri fjár­mögn­un held­ur þyrfti stofn­un­in að vera fjár­mögnuð með allt öðrum og ábyrg­ari hætti. Það er meðal ann­ars breyt­ing á því fyr­ir­komu­lagi sem orðið hef­ur núna og kall­ar á það að við setj­umst yfir þetta og skoðum málið í stærra sam­hengi. Það er það sem við erum að gera og ég er vongóður um að á næstu dög­um mun­um við finna leiðir til að Haf­rann­sókna­stofn­un geti áfram sinnt sínu mik­il­væga hlut­verki með for­svar­an­leg­um hætti. Annað kem­ur ekki til greina í mín­um huga.“

Eng­in ákvörðun enn verið tek­in

Í sam­eig­in­legri yf­ir­lýs­ingu Sjó­manna­sam­bands Íslands, Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, Fé­lags skip­stjórn­ar­manna og VM - Fé­lags vél­stjóra og málm­tækni­manna, sem birt var í morg­un, var bent á að krafa um hagræðingu og niður­skurð hjá Haf­rann­sókna­stofn­un rímaði illa við þau sjón­ar­mið sem fram hefðu komið í þings­álykt­un þeirri sem gerð var í sum­ar, í tengsl­um við smíði á nýju haf­rann­sókna­skipi.

„Ég tek und­ir það sem þar kem­ur fram, um mik­il­vægi rann­sókna. En ég ít­reka það enn og aft­ur, að það hef­ur eng­in ákvörðun enn þá verið tek­in í þess­um efn­um. En þau sjón­ar­mið sem fram koma í yf­ir­lýs­ingu fé­lag­anna – ég tek und­ir þau.“

mbl.is