Gagnrýnir framsetningu formanns NASF

Sigurður Pétursson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Arctic Fish.
Sigurður Pétursson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Arctic Fish. mbl.is/Árni Sæberg

Lax­eldi í sjókví­um er ein um­hverf­i­s­væn­asta aðferðin sem þekk­ist í dag við fram­leiðslu á dýra­prótein­um og yfir 99% af öllu lax­eldi heims­ins fylgja þeirri fram­leiðsluaðferð. Þetta seg­ir Sig­urður Pét­urs­son, fram­kvæmda­stjóri viðskiptaþró­un­ar hjá lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arctic Fish.

Hann gagn­rýn­ir fram­setn­ingu Friðleifs Guðmunds­son­ar, for­manns Vernd­ar­sjóðs villtra laxa (NASF), í sam­tali við 200 míl­ur í síðustu viku og seg­ir hana vill­andi.

Friðleif­ur sagði í því viðtali að hvata skorti, af hálfu stjórn­valda, til að stuðla að um­hverf­i­s­vænna eldi við strend­ur lands­ins. Sagði hann þenn­an skort birt­ast skýrt í fram­leiðslu Arctic Fish og benti á að fé­lagið væri að stór­um hluta í eigu norska fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Norway Royal Salmon.

„Móður­fé­lagið er að gera til­raun­ir með fram­leiðslu í lokuðum kví­um í Nor­egi en þegar hingað er komið sleppa þeir því því þeir sjá að þeir þurfa þess ekki. Hefðbundn­ar opn­ar kví­ar eru ódýr búnaður. Um leið og fyrstu slátr­un­inni er lokið hafa menn greitt upp opnu kvína. En frá markaðssjón­ar­miðum, ef menn eru á annað borð lítið að spá í um­hverfið, þá er skilj­an­legt að þeir fari þessa ódýr­ari leið,“ sagði Friðleif­ur.

Norway Royal Salmon er stærsti eigandi Arctic Fish.
Norway Royal Salmon er stærsti eig­andi Arctic Fish. mbl.is/​Guðlaug­ur Al­berts­son

Vannýtt­ir blá­ir akr­ar

Í sam­tali við 200 míl­ur í dag seg­ir Sig­urður að sú staðreynd að Norway Royal Salmon, stærsti eig­andi Arctic Fish, sé að und­ir­búa til­raun­ir með eldi í lokuðum kví­um í Nor­egi þýði ekki að slíkt geti ekki orðið að veru­leika hjá Arctic Fish á Íslandi í framtíðinni.

„Þvert á móti,“ seg­ir hann. „Þess ber þó að geta, að eins og í land­eldi þá krefst eldi í lokuðum kví­um mun meiri orku. Gæti það því eins og staðan er í dag ekki flokk­ast sem „um­hverf­i­s­vænni“ eldisaðferð að mínu mati.“

Sjó­eldi hafi það fram yfir land­eldið, fyr­ir utan það jarðrask sem fylgi land­eld­inu, að þurfa minni orku til fram­leiðslunn­ar. Eld­is­dýr­in séu þá í mun minni þétt­leika í sjó­eld­inu.

„Land­eldi er og verður alltaf hluti af eld­is­fram­leiðslu fyr­ir lax­eldi en ólík­legt er að það keppi í magni við fisk­eldi á vannýtt­um blá­um ökr­um hafs­ins sem þótt þeir spanni yfir þrjá fjórðu hluta heims­ins gefa okk­ur inn­an við 5% af fæðufram­boði heims­ins. Það er því ekki að ástæðulausu að alþjóðastofn­an­ir á borð við Mat­væla- og land­búnaðar­stofn­un Sam­einuðu þjóðanna leggja áherslu á upp­bygg­ingu fisk­eld­is sem góðan val­kost til framtíðar.“

Fremst í til­raun­um á ófrjó­um laxi

Bend­ir Sig­urður á að Ísland sé í raun með mesta land­eldi á mat­fiski í heim­in­um í dag. „Það er eld­is­stöð Sam­herja í Öxarf­irði sem fram­leiðir um eitt þúsund tonn, sem set­ur Ísland líka í þá sér­stöðu að vera með hlut­falls­lega mestu fram­leiðslu lax á landi í dag eða um 10% á síðasta ári.“

Norway Royal Salmon, stærsti eig­andi Arctic Fish, sé þá lík­lega fremst fyr­ir­tækja í heim­in­um hvað varðar þróun til­rauna á ófrjó­um laxi. „Lyk­il­orðið hér er þó að hér er enn um að ræða eldi á til­rauna­stigi. Vissu­lega hef­ur átt sér stað já­kvæð framþróun og von­andi er þetta mögu­leiki sem get­ur opn­ast frek­ar í framtíðinni og við fylgj­umst mjög náið með þeim fram­förum.“

mbl.is