Stóð alltaf til að finna leiðir til að fjármagna Hafró

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Menn fundu leiðir til þess að fjár­magna starf­semi Haf­rann­sókna­stofn­un­ar á þann máta að hún stæði á svipuðum slóðum og hún gerði í störf­um sín­um á ár­inu 2018,“ seg­ir Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, í sam­tali við mbl.is.

Í til­kynn­ingu frá Haf­rann­sókna­stofn­un fyrr í kvöld kom fram að dregið hef­ur verið úr fyr­ir­huguðum niður­skurði hjá Haf­rann­sókn­ar­stofn­un í kjöl­far stífra fund­ar­halda sjáv­ar­út­vegs­ráðherra með starfs­fólki at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­is.

Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, sagði í sam­tali við mbl.is í gær að allt að tutt­ugu starfs­mönn­um yrði sagt upp fyr­ir lok mánaðar og að rann­sókna­skipi stofn­un­ar­inn­ar, Bjarna Sæ­munds­syni, yrði lagt fyr­ir fullt og allt.

„Ég hafði aldrei heyrt á það minnst fyrr en í fjöl­miðlum að menn væru að ræða það að segja upp tutt­ugu manns og leggja einu skipi,“ seg­ir Kristján í sam­tali við mbl.is. Hann seg­ir að alltaf hafi staðið til að finna leiðir til að bæta úr þeim breyt­ing­um sem urðu á fjár­mögn­un Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Bjart­sýnn á fram­haldið

„Við höf­um setið yfir þessu síðustu daga og vik­ur og afrakst­ur þeirr­ar vinnu ligg­ur nú fyr­ir í þess­ari niður­stöðu. Okk­ar bíður þó það verk­efni að lag­færa hvernig stofn­un­in er fjár­mögnuð þannig að það sé ekki verið að fjár­magna var­an­leg verk­efni með tekju­stofn­um sem fara upp eða niður milli ára. Það er brýnt í mín­um huga,“ bæt­ir Kristján við.

Hann seg­ir að hagræðing­ar­krafa sem gerð er á Haf­rann­sókna­stofn­un sé sú sama og gerð er á aðrar stofn­an­ir rík­is­ins og er hann bjart­sýnn að Haf­rann­sókna­stofn­un og aðrar stofn­an­ir geti unnið inn­an þess fjár­hagsramma.

„Get­um haldið Bjarna Sæ­munds­syni“

„Þessi niðurstaða sem nú er kom­in leiðir til þess að við get­um haldið Bjarna Sæ­munds­syni og haldið í okk­ar ágæta fólk. Það er ljóst að við þurf­um að taka hagræðing­ar­kröf­um eins og aðrar rík­is­stofn­an­ir og síðan að afla tekna. Í haust mun­um við leigja frá okk­ur Árna Friðriks­son, þannig það brú­ar bilið í ár,“ sagði Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar í kvöld­frétt­um RÚV fyrr í kvöld. Hann sagði jafn­framt aðspurður að Haf­rann­sókna­stofn­un kæm­ist þokka­lega frá hagræðing­unni.

Sam­kvæmt heim­ild­um RÚV er unnið að lausn sem miðar að því að stofn­un­in fái fram­lag úr rík­is­sjóði í stað 140 millj­óna króna sem áttu að koma úr Verk­efna­sjóði sjáv­ar­út­vegs­ins.

Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunnar, segir að stofnunin komist þokkalega frá …
Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri Haf­rann­sókn­ar­stofn­unn­ar, seg­ir að stofn­un­in kom­ist þokka­lega frá hagræðing­ar­kröf­um. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son
mbl.is

Bloggað um frétt­ina