„Árás á vísindamenn Hafrannsóknastofnunar“

Húsakynni Hafrannsóknastofnunar að Skúlagötu 4.
Húsakynni Hafrannsóknastofnunar að Skúlagötu 4. mbl.is/Arnþór Birkisson

Lands­sam­band veiðifé­laga ger­ir al­var­leg­ar at­huga­semd­ir við drög að frum­varpi sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, til breyt­inga á ýms­um laga­ákvæðum sem tengj­ast fisk­eldi.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu sem sam­bandið hef­ur sent frá sér. Seg­ir í henni að drög­in séu gjör­breytt frá því frum­varpi sem lagt hafi verið fyr­ir síðasta vorþing, og að í þeim fel­ist brot á sam­komu­lagi sem náðst hafi í starfs­hópi ráðherra um stefnu­mörk­un í fisk­eldi.

„Með nýju ákvæði um svo­kallaðan sam­ráðsvett­vang eru leik­menn að meiri­hluta sett­ir þar til höfuðs vís­inda­mönn­um Haf­rann­sókn­ar­stofn­un­ar og skal vett­vang­ur­inn leggja mat á vís­inda­störf þeirra með álits­gerð á áhættumati erfðablönd­un­ar. Þá er ráðherra gefið vald til að hafa vís­inda­leg­ar niður­stöður að engu sýn­ist hon­um svo,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Kúvend­ing á meðferð áhættumats

Þessi ákvæði brjóti gegn skýr­um ákvæðum nátt­úru­vernd­ar­laga um meðferð stjórn­valda á vís­inda­leg­um niður­stöðum. Sam­bandið seg­ist mót­mæla þess­um hug­mynd­um ráðherra harðlega í inn­sendri um­sögn um frum­varps­drög­in og seg­ir þær „árás á vís­inda­menn Haf­rann­sókna­stofn­un­ar“.

Í grein­ar­gerð sem fylg­ir frum­varps­drög­un­um sé því rang­lega haldið fram að meg­in­efni þess byggi á til­lög­um starfs­hóps um stefnu­mörk­un í fisk­eldi sem all­ir nefnd­ar­menn hafi samþykkt með sér­stakri und­ir­ritaðri yf­ir­lýs­ingu.

„Þvert á móti er koll­varpað því sem var þar samþykkt. Kúvend­ing á meðferð áhættumats um erfðablönd­un í frum­varp­inu fær­ir ráðherra mála­flokks­ins geðþótta­vald yfir um­hverf­is­mál­um fisk­eld­is­ins enda þarf ráðherra ekki að rök­styðja ákvörðun sína um hvort áhættumat skuli gilda hverju sinni eða ekki sam­kvæmt frum­varp­inu.“

Tekj­urn­ar ein meg­in­stoð land­búnaðar

Lands­sam­bandið seg­ist telja að frum­varpið hafi verið unnið ein­hliða í sam­ráði við fisk­eld­is­menn, enda sjá­ist fingra­för þeirra greini­lega á mál­inu, og gagn­rýn­ir al­gert sam­ráðsleysi við aðra hags­munaaðila.

Seg­ir í um­sögn­inni að verði frum­varpið óbreytt að lög­um sé verið að efna til stór­felldra átaka stjórn­valda og lög­gjaf­ans við þá sem gæti hags­muna veiðirétt­ar­eig­enda að lög­um.

„Í því sam­hengi má minna á að tekj­ur af stang­veiði er ein meg­in­stoð land­búnaðar á Íslandi. Þegar landið er tekið í heild eru tekj­ur af stang­veiði 28 pró­sent af hagnaði og launa­kostnaði í land­búnaði. Hæst er hlut­fallið á Vest­ur­landi þar sem þess­ar tekj­ur af stang­veiði eru 69% af hagnaði og launa­kostnaði í land­búnaði, og næst hæst á Aust­ur­landi þar sem það er 34 pró­sent.“

mbl.is