„Andrúmsloftið eins og svart og hvítt“

Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar.
Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Við erum kom­in fyr­ir vind, skul­um við segja,“ seg­ir Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, en greint var frá því á föstu­dag að dregið hef­ur verið úr fyr­ir­huguðum niður­skurði stofn­un­ar­inn­ar.

Þá voru að baki stíf fund­ar­höld for­svars­manna stofn­un­ar­inn­ar með sjáv­ar­út­vegs­ráðherra og starfs­fólki ­ráðuneyt­is­ins.

Á tíma­bili var út­lit fyr­ir að segja þyrfti upp allt að tutt­ugu starfs­mönn­um stofn­un­ar­inn­ar, áður en gripið var í taum­ana á föstu­dag. Spurður hvort starfs­mönn­um hafi verið létt um leið og til­kynnt var að sam­komu­lag hefði náðst, seg­ir Sig­urður það tví­mæla­laust.

„Við gát­um til­kynnt þetta strax á föstu­dag­inn og and­rúms­loftið var þess vegna eins og svart og hvítt, síðdeg­is á föstu­dag miðað við dag­ana þar á und­an.“

Húsakynni Hafrannsóknastofnunar að Skúlagötu 4.
Húsa­kynni Haf­rann­sókna­stofn­un­ar að Skúla­götu 4. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

Ekki boðlegt fyr­ir­komu­lag

„Í fram­hald­inu mun­um við öll­söm­ul vinna að því að fá traust­ari grunn und­ir þetta hjá okk­ur, svo við lend­um ekki í öðrum eins svipt­ing­um,“ seg­ir for­stjór­inn.

Kristján Þór Júlí­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráðherra benti í síðustu viku á að tölu­verður hluti, eða nokk­ur hundruð millj­óna króna, af fjár­mögn­un Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, hefði und­an­far­in ár feng­ist með fjár­fram­lagi úr Verk­efna­sjóði sjáv­ar­út­vegs­ins. Stór hluti þess niður­skurðar sem blasti við stofn­un­inni hefði verið vegna þess að tekj­ur úr sjóðnum dróg­ust veru­lega sam­an á síðastliðnum árum.

„Um er að ræða fjár­muni sem fást vegna upp­töku ólög­mæts sjáv­ar­afla. Í mín­um huga er það ekki boðlegt fyr­ir­komu­lag að stofn­un­in sé háð slíkri fjár­mögn­un held­ur þyrfti stofn­un­in að vera fjár­mögnuð með allt öðrum og ábyrg­ari hætti,“ sagði ráðherr­ann á fimmtu­dag.

Von­laus fjár­mögn­un fyr­ir starfið

Sig­urður tek­ur und­ir þetta sjón­ar­mið í sam­tali við 200 míl­ur í dag.

„Þessi verk­efna­sjóður er nátt­úru­lega eig­in­lega von­laus fjár­mögn­un fyr­ir svona starf. Það er búið að tala um það frá því áður en ég tók við, en eins og alþjóð veit þá hef­ur ekki verið nein sér­stök end­ing á ráðherr­um,“ seg­ir Sig­urður. „Um leið og all­ir eru orðnir sam­mála um að þetta þurfi að gera, þá spring­ur rík­is­stjórn eða annað því líkt kem­ur upp á.“

Því sé það ef til vill verk­efni fyr­ir næstu fjár­lög að hnýta þessa hnúta bet­ur, eins og Sig­urður kemst að orði.

Spurður hvernig komið verði til móts við stofn­un­ina seg­ir hann að henni verði veitt það fé sem verk­efna­sjóður­inn hefði ann­ars staðið und­ir.

„Við vor­um að fá 390 millj­ón­ir á síðasta ári og við fáum þá sam­svar­andi upp­hæð á þessu ári. Svo get­um við mætt þess­ari hagræðing­ar­kröfu með því að leigja frá okk­ur Árna,“ seg­ir Sig­urður, en greint var frá því í síðustu viku að haf­rann­sókna­skipið Árni Friðriks­son yrði leigt til Nor­egs í haust, í einn og hálf­an mánuð.

„Þar með erum við sem sagt kom­in fyr­ir vind á þessu ári, en við vilj­um meina að fjár­veit­ing­in þurfi að vera trygg­ari til verk­efna Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, ekki síst nú þegar mikl­ar breyt­ing­ar eru að eiga sér stað í sjón­um við landið,“ seg­ir Sig­urður.

„Ég held að eng­inn vilji svelta Hafró mikið, miðað við hvaða starfi við eig­um að sinna.“

mbl.is