Gat á sjókví í Arnarfirði

Kort/Map.is

Mat­væla­stofn­un barst í dag til­kynn­ing frá Arn­ar­laxi um gat á nótar­poka einn­ar sjókví­ar Arn­ar­lax við Hrings­dal í Arnar­f­irði.

Gatið upp­götvaðist við skoðun kafara í morg­un og er viðgerð lokið. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um Arn­ar­lax var gatið um 15 cm x 50 cm og á 20 m dýpi og voru um 157.000 lax­ar í kvínni með meðalþyngd 1,3 kg, að því er seg­ir á vef MAST.

At­vikið er til meðferðar hjá Mat­væla­stofn­un og munu eft­ir­lits­menn stofn­un­ar­inn­ar skoða aðstæður hjá fyr­ir­tæk­inu og fara yfir viðbrögð þess. Arn­ar­lax hef­ur lagt út net í sam­ráði við Fiski­stofu til að kanna hvort slysaslepp­ing hafi átt sér stað, seg­ir enn frem­ur í til­kynn­ing­unni.

mbl.is