Eykur hlut sinn í Arnarlaxi

Fiskeldi. Myndin er úr safni.
Fiskeldi. Myndin er úr safni. mbl.is/Helgi Bjarnason

Norska eld­is­fyr­ir­tækið Salm­ar, sem er hlut­hafi í Arn­ar­laxi og er skráð í kaup­höll­inni í Ósló, hef­ur gert samn­ing um kaup á 3.268 hlut­um í Arn­ar­laxi fyr­ir um 2,5 millj­arða ís­lenskra króna.

Þetta kem­ur fram á vef Fisk­eld­is­blaðsins.

Salm­ar mun í kjöl­far viðskipt­anna bjóða öðrum hlut­höf­um 55,50 krón­ur á hlut í þeim til gangi að eign­ast fé­lagið al­farið.

Heild­ar­virði eft­ir­stand­andi hluta­bréfa er 676 millj­ón­ir norskra króna, að því er kem­ur fram á vefn­um.

Fram kem­ur að Kjart­an Ólafs­son, stjórn­ar­formaður Arn­ar­lax, vilji halda sín­um eign­ar­hlut í fyr­ir­tæk­inu og ætli ekki að selja sín hluta­bréf.

mbl.is