Lax enn fluttur inn

Stór og fallegur lax á land.
Stór og fallegur lax á land. mbl.is/Helgi Bjarnason

Þótt hér á landi séu fram­leidd nærri 20 þúsund tonn af laxi og sil­ungi á ári eru enn flutt inn á þriðja hundrað tonn af fersk­um laxi, aðallega frá Fær­eyj­um.

Aðalástæðan fyr­ir því að enn er flutt­ur inn lax er sú að fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­in slátra ekki laxi all­ar vik­ur árs­ins. Þessi hlé hafa þó styst og út­lit er fyr­ir stöðugra fram­boð.

Flutt voru inn 219 tonn af fersk­um, heil­um laxi og sil­ungi á síðasta ári. Er það held­ur minna en á ár­inu á und­an, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Markaður fyr­ir laxa­af­urðir hér inn­an­lands fer vax­andi, eins og í ná­granna­lönd­un­um. Ein­ar K. Guðfinns­son, formaður Lands­sam­bands fisk­eld­is­stöðva, seg­ir að fyr­ir­tæk­in hafi lagt sig fram við að þjóna ís­lenska markaðnum þótt hann sé ekki stór í heild­ar­sam­heng­inu.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: