Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, afrekskona í crossfit, sigraði um helgina á móti sem ber heitið Strength in Depth og fór fram í London. Því er ljóst að hún verður á meðal þátttakenda á heimsleikunum, sem fram fara í ágúst.
Breyting var gerð á undankeppni heimsleikanna í crossfit í ár og nú eru leiðirnar inn á leikana fjölbreyttari, en mótið um helgina er eitt af sextán í nýrri mótaröð þar sem sigurvegari í hverjum flokki, það er karla, kvenna og liðaflokki, fær keppnisrétt á heimsleikunum.
Áður lá leið Söru og hinna Íslendinganna sem eru í fremstu röð í crossfit-heiminum í gegnum sérstaka Evrópuleika, en nú eru möguleikarnir fleiri til þess að tryggja þátttökurétt sinn á meðal þeirra hraustustu í heimi.
Sara skaut keppinautum sínum ref fyrir rass og endaði með 682 stig, en Jamie Greene frá Ástralíu og Dani Speegle frá Bandaríkjunum enduðu í 2. og 3. sæti með 638 og 602 stig.