Mohammad Javad Zarif, utanríkisráðherra Írans, hefur sagt af sér embætti. Frá þessu greinir hann á Instagram-aðgangi sínum.
Zarif kom meðal annars að undirritun fjölþjóðlegs samkomulags sem gert var við Íran árið 2015, um afnám kjarnorkuvopna. Frá því að Donald Trump tók við embætti forseta Bandaríkjanna hefur hann gagnrýnt samkomulagið harðlega og sagt það einhliða.
Í yfirlýsingu sem fylgir afsögninni segir Zarif að hann sé óhæfur til að gegna embættinu og biðst afsökunar á annmörkum sínum í starfi, án þess að útskýra nánar í hverju þeir felast.
View this post on InstagramA post shared by Javad Zarif (@jzarif_ir) on Feb 25, 2019 at 11:51am PST