Matvælastofnun hefur veitt Arctic Smolt rekstrarleyfi til fiskeldis að Norður-Botni í Tálknafjarðarhreppi. Um er að ræða breytingu á eldra rekstrarleyfi fyrirtækisins úr 200 tonnum í 1.000 tonna eldi á laxa- og regnbogasilungsseiðum á landi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun, en í henni segir að framkvæmdin sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Heimilt sé að kæra ákvörðun stofnunarinnar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.