Arnarlax uppfærir og stækkar seiðastöðina

Unnið við byggingu fjögurra kera. Stálkerin voru sett upp fyrir …
Unnið við byggingu fjögurra kera. Stálkerin voru sett upp fyrir tveimur árum. Byggt verður yfir stöðina. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Arn­ar­lax er að byggja upp og nú­tíma­væða seiðastöð sína, Bæj­ar­vík í Tálknafirði. Eft­ir stækk­un mun verða unnt að fram­leiða þar um tvær millj­ón­ir seiða til að setja út í kví­ar Arn­ar­lax í fjörðum Vest­fjarða.

Nú er unnið að því að byggja fjög­ur 500 lítra eldisker fyr­ir eldi stærstu seiðanna. Byggt verður yfir ker­in. Áætlað er að taka þenn­an nýja hluta stöðvar­inn­ar í notk­un eft­ir næstu mánaðamót. Á þessu ári er áformað að byggja yfir alla stöðina. Þá verður byggt smá­seiðahús þar sem verður klak­stöð og smá­seiðaeldi. Arn­ar­lax hef­ur hætt notk­un eldri ker­anna.

Gera stöðina ör­ugg­ari

„Við erum að taka næsta skref í upp­bygg­ingu eld­is­ins. Erum að hlúa að seiðaeld­inu til að geta fram­leitt heil­brigð og hraust seiði og gera stöðina eins ör­ugga gagn­vart hættu á sjúk­dóm­um og unnt er,“ seg­ir Garðar Sigþórs­son, stöðvar­stjóri í Bæj­ar­vík, í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: