„Við erum mjög sátt við þessa niðurstöðu. Við fengum að fylgjast vel með öllu og finnum eindrægan vilja til að standa vel að málum og halda öllu uppi á yfirborðinu. Það eru allir að róa í sömu átt,” segir Karl Óskar Þráinsson, varaformaður foreldrafélags Fossvogsskóla.
Fossvogsskóla verður lokað eftir kennslu á miðvikudag vegna raka- og loftgæðavandamála. Kennt verður í skólanum í dag og fram á miðvikudag. Kennsla á að hefjast að nýju annars staðar á mánudag. Ekki liggur fyrir hvar nemendum í 1. -3. bekk og 5. - 7. verður komið fyrir og þeir sitji kennslustundir þær 12 vikur sem eftir eru af skólaárinu.
Karl segist ánægður með að heilsu barnanna sé borgið og að það sé mikilvægast í þessu máli. Hann er ánægður með að farið verði tafarlaust í framkvæmdir á húsnæðinu. Reiknað er með að skólahald hefjist að nýju í Fossvogsskóla næsta haust eftir úrbætur á húsnæðinu.
„Núna er stórt verkefni að koma upp faglegu starfi á nýjum stað. Við leggjum áherslu á að tala þetta niður hjá börnunum og viljum ekki ýta undir ugg og ótta. Við þurfum að sjá tækifærin í þessu og kenna þeim að gera það líka. Þau fá mögulega tækifæri til að kynnast nýjum krökkum og kennurum ef þau fara í aðra skóla,“ segir Karl.
Foreldrar hafa verið vel upplýstir um gang mála, að sögn Karls. Í gær sat hann fund meðal annars með skólastjórnendum og fulltrúum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Í kvöld verður annar fundur þar sem farið verður yfir stöðuna eftir daginn í dag.