Allt gert til að fyrirbyggja sýkingu

Kvíar Laxa fiskeldis á blíðviðrisdegi. Huga þarf vandlega að sótthreinsun …
Kvíar Laxa fiskeldis á blíðviðrisdegi. Huga þarf vandlega að sótthreinsun tækja og fatnaðar og hvíla eldissvæðin.

Í ís­lensku lax­eldi er ströng­um heil­brigðis­kröf­um fylgt til að lág­marka lík­urn­ar á sjúk­dóm­um. Í Nor­egi eru fisk­ar sett­ir í kví­arn­ar sem éta lús­ina af lax­in­um.

Mikl­ar fram­far­ir hafa orðið í sjúk­dóma­vörn­um í fisk­eldi og má sem dæmi nefna að í Nor­egi hef­ur þró­un­in náð því stigi að ekki þarf leng­ur að beita lyfj­um til að halda laxal­ús í skefj­um. Fisk­eld­is­fyr­ir­tæki þurfa samt að gæta sín að sofna ekki á verðinum og gefa eng­an af­slátt af ýtr­ustu kröf­um.

Þetta seg­ir Gunn­ar Steinn Gunn­ars­son, fram­leiðslu­stjóri mat­fisks hjá Löx­um fisk­eldi. Á Strand­búnaðar-ráðstefn­unni 21. til 22. mars mun hann halda er­indi um sjúk­dóma­varn­ir og for­varn­ir í ís­lensku lax­eldi en Gunn­ar Steinn er að ljúka doktors­námi á sviði fisk­sjúk­dóma við Há­skól­ann í Björg­vin.

Gunnar Steinn Gunnarsson er sérfræðingur í fisksjúkdómum.
Gunn­ar Steinn Gunn­ars­son er sér­fræðing­ur í fisk­sjúk­dóm­um.

Berst í eld­islax­inn með villt­um laxi

Ýmsir sjúk­dóm­ar geta gert fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­um lífið leitt en laxal­ús­in hef­ur verið stærsta vanda­málið í norsku lax­eldi. Gunn­ar Steinn seg­ir aðstæður á Íslandi góðar að því leyti að hér er sjór­inn ögn kald­ari en í norsku fjörðunum og fyr­ir vikið þrífst lús­in ekki eins vel.

„Rann­sókn­ir á þróun lirfu laxal­ús­ar­inn­ar hafa leitt í ljós að um leið og hita­stigið fer und­ir 4°C hæg­ir veru­lega á vexti lús­ar­inn­ar, henni geng­ur illa að festa sig við lax­inn og drepst. Um­hverf­is Ísland er sjór­inn á bil­inu 8-9°C þegar hann er heit­ast­ur en fer allt niður í 2,5°C á vet­urna,“ út­skýr­ir Gunn­ar og bæt­ir við að þar með sé ekki hægt að stóla á að lús­in muni aldrei láta á sér kræla hjá ís­lensk­um lax­eld­is­stöðvum.

„Laxal­ús­in berst í eld­islax­inn með villt­um laxi og þó grein­in hér­lend­is hafi sloppið vel til þessa er ekki hægt að úti­loka að lús­in verði á ein­hverj­um tíma­punkti til vand­ræða. Eru fisk­eld­is­stöðvar á Aust­ur­landi að því leyti bet­ur stadd­ar að þar er minna af villt­um laxi.“

Ítar­legri um­fjöll­un má lesa í ViðskiptaMogg­an­um sem fylgdi Morg­un­blaðinu á fimmtu­dag.

Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: