Stofnað sé til átaka um náttúru Íslands

60.000 Íslendingar eru sagðir stunda lax- og/eða silungsveiðar.
60.000 Íslendingar eru sagðir stunda lax- og/eða silungsveiðar. mbl.is/Einar Falur

Formanna­fund­ur Lands­sam­bands veiðifé­laga og Lands­sam­bands stanga­veiðifé­laga átel­ur harðlega það sam­ráðsleysi sem sagt er hafa verið viðhaft við und­ir­bún­ing fram­lagðs frum­varps til breyt­inga á lög­um um fisk­eldi.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá sam­bönd­un­um tveim­ur. Í henni seg­ir að vinnu­brögð við und­ir­bún­ing frum­varps­ins séu ekki til þess fall­in að ná sátt um þetta mik­il­væga mál. Þvert á móti sé verið að stofna til átaka um nátt­úru Íslands.

Í álykt­un fund­ar­ins er full­yrt að í fyr­ir­liggj­andi frum­varpi sé ekki að finna skýra stefnu­mörk­un  um að þróa skuli fisk­eldi til um­hverf­i­s­vænni eldisaðferða í framtíðinni eða leiðir til að ná þeim mark­miðum.

„Til­lög­ur um að svo­kölluð sam­ráðsnefnd um fisk­eldi hafi það með hönd­um að gera til­lög­ur að breyt­ing­um á áhættumati um erfðablönd­un opn­ar leið til póli­tískra af­skipta af mat­inu. Ákvæðið er aug­ljós­lega sett fram til að auðvelda ráðherra að hafa póli­tísk áhrif á niður­stöður áhættumats erfðablönd­un­ar og fer því al­farið gegn ákvæðum nátt­úru­vernd­ar­laga um meg­in­regl­ur sem skylt er að hafa í heiðri til vernd­ar nátt­úr­unni,“ seg­ir í til­kynn­ingu sam­band­anna.

Veiðimenn og veiðirétt­ar­eig­end­ur snúi bök­um sam­an

„Fund­ur­inn hvet­ur til þess að ytra eft­ir­lit með fisk­eldi verði aukið og falið Fiski­stofu. Þá var­ar fund­ur­inn við að ákvæði frum­varps­ins um heim­ild­ir Haf­rann­sókna­stofn­un­ar til rann­sókna virðist eiga að nota til að lauma norsk­um laxi í sjókví­ar í Ísa­fjarðar­djúpi, án þess að lög­bund­in leyfi liggi fyr­ir og und­ir því yf­ir­skyni að um „til­raun“ sé að ræða. Meiri ástæða væri til að auka grunn­rann­sókn­ir á líf­rík­inu og þeim áhrif­um sem nú­ver­andi eldi hef­ur á um­hverfið.“

Sam­kvæmt nýrri skýrslu Hag­fræðistofn­un­ar Há­skól­ans um virði lax- og sil­ungsveiða hafi 3.400 lög­býli tekj­ur af lax- og sil­ungsveiði í dreifðu byggðum lands­ins. Þá leiði skýrsl­an einnig í ljós að 60.000 Íslend­ing­ar stundi lax- og/​eða sil­ungsveiðar. Vernd­un þess­ar­ar auðlind­ar eigi að vera leiðarljós við alla laga­setn­ingu um fisk­eldi. 

Að lok­um seg­ir að á fund­in­um hafi verið ákveðið að veiðimenn og veiðirétt­ar­eig­end­ur snúi bök­um sam­an til varn­ar villt­um laxa­stofn­um, og muni „berj­ast sam­eig­in­lega gegn skaðleg­um áform­um sjókvía­eld­is­fyr­ir­tækj­anna“.

mbl.is