Gerð verður úttekt á öllu skólahúsnæði Mosfellsbæjar og heildarúttekt á húsnæði Varmárskóla. Þetta var samþykkt á bæjarstjórnarfundi í gær.
„Ef fram koma merki um örveruvöxt í þeirri skoðun verði strax gerð áætlun um úrbætur og ráðist í þær. Þrátt fyrir þær þrjár úttektir sem Efla hefur gert á húsnæði Varmárskóla og úrbætur í kjölfar þeirra eru enn uppi efasemdir í skólasamfélaginu í Mosfellsbæ um að nóg sé að gert.“ Þetta segir í fundargerð.
Frá því fyrsta sjónskoðun Eflu var gerð árið 2017 hefur verið þrýst á bæjaryfirvöld um heildarúttekt á skólahúsnæðinu. Á Facebook-síðu íbúa Mosfellsbæjar gagnrýna margir skeytingarleysi bæjarstjórnar um nauðsynlegar úrbætur á skólahúsnæðinu.
Fréttin var uppfærð kl. 14:50