Eftirlitið verði í heimabyggð

Sömu kröfu um staðsetningu eftirlitsstarfa í sveitarfélaginu er að finna …
Sömu kröfu um staðsetningu eftirlitsstarfa í sveitarfélaginu er að finna í umsögn frá Fjarðabyggð.

30 um­sagn­ir og at­huga­semd­ir höfðu í gær borist at­vinnu­vega­nefnd Alþing­is vegna frum­varps sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra um fisk­eldi. Meðal ann­ars höfðu nokk­ur sveit­ar­fé­lög sent nefnd­inni at­huga­semd­ir og koma ýmis sjón­ar­mið þar fram.

Í um­sögn sveit­ar­stjórn­ar Þing­eyj­ar­sveit­ar er lýst and­stöðu við frum­varpið og seg­ir þar að ljóst sé að verði fyr­ir­liggj­andi frum­varp samþykkt óbreytt sem lög frá Alþingi „er efnt til stór­felldra átaka um fisk­eldi um ókomna framtíð. Með frum­varp­inu er rof­in sú sátt sem und­ir­rituð var um meðferð áhættumats í lög­um af öll­um nefnd­ar­mönn­um í starfs­hópi um stefnu­mörk­un í fisk­eldi“.

Bæj­ar­stjórn Vest­ur­byggðar sendi at­vinnu­vega­nefnd bók­un bæj­ar­stjórn­ar frá 27. mars. Þar er þeim mark­miðum fagnað sem frum­varp­inu sé ætlað að ná fram, að tryggja betri stöðuleika í rekstr­ar­skil­yrðum fyr­ir­tækja í fisk­eldi og auka gegn­sæi.

Sér­stak­lega er fagnað mark­miðum frum­varps­ins um að efla stjórn­sýslu og auka eft­ir­lit með fisk­eldi þannig að vernd og sjálf­bærni í nýt­ingu auðlinda og nátt­úru­gæða verði bet­ur tryggð. Þrátt fyr­ir áhersl­ur í frum­varp­inu um innra eft­ir­lit þá sé ljóst af efni þess að auk­in eft­ir­lits­skylda sé lögð á op­in­ber­ar stofn­an­ir sem hafi eft­ir­lit með fisk­eldi, þ.e. Mat­væla­stofn­un, Um­hverf­is­stofn­un og Haf­rann­sókna­stofn­un.

Bent er á upp­bygg­ingu í lax­eldi á sunn­an­verðum Vest­fjörðum og ít­rek­ar bæj­ar­stjórn­in kröfu sína um að störf þeirra sem sinna eft­ir­liti með fisk­eldi verði staðsett þar sem fisk­eldið fer fram.

Sömu kröfu um staðsetn­ingu eft­ir­lits­starfa í sveit­ar­fé­lag­inu er að finna í um­sögn frá Fjarðabyggð. Þá er þar m.a. lagt til að Haf­rann­sókna­stofn­un verði gert skylt að leita álits hjá staðbundn­um stjórn­völd­um og að við út­hlut­un eld­is­svæða verði tekið mið af stöðu ein­stakra byggða í at­vinnu­legu til­liti.

Ítar­legri um­fjöll­un á síðu 14 í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: