Kjósa á að nýju í stjórn Sjómannafélag Íslands. Sjómannafélagið greinir frá þessu á vef sínum og segir stjórn og trúnaðarmannaráð félagsins hafa ákveðið að kosið skuli að nýju „til að hafið sé yfir vafa að frambjóðendur á listum stjórnar félagsins sitji í óumdeildu umboði,“ að því er segir í yfirlýsingunni.
Stjórn og trúnaðarmannaráð félagsins séu þó engu að síður enn þeirra skoðunar að mótframboð B-listans hafi verið ólögmætt vegna annmarka sem á framboðinu voru.
Mbl.is hefur áður greint frá því að Heiðveig María Einarsdóttir hafði ætlað að gefa kost á sér til stjórnarsetu, en kjörstjórn komst að þeirri niðurstöðu að hún hefði ekki kjörgengi þar sem hún hefði ekki greitt félagsgjöld í þrjú ár samfellt. Aukinheldur var Heiðveigu vísað úr Sjómannafélaginu og hún sögð hafa valdið félaginu skaða.
Í yfirlýsingunni segir að með dómi Félagsdóms í máli Heiðveigar gegn Sjómannafélaginu hafi dómurinn komist að þeirri niðurstöðu að „óheimilt væri að gera það að skilyrði kjörgengis í félaginu að greidd hafi verið félagsgjöld til félagsins í a.m.k. þrjú ár.“
Í kjölfarið hafi verið skorað á félagið að boða á ný til kosninga til stjórnar, trúnaðarmannaráðs og stjórnar matsveinadeildar félagsins, en kosningar fóru fram í nóvember síðastliðinn.Það sé þó mat stjórnar, trúnaðarmannaráðs og lögmanna félagsins, að Heiðveig hafi ekki verið dæmd inn í Sjómannafélagið á ný með dóminum, auk þess sem hún hafi hafnað boði um að ganga aftur í félagið.
„Þrátt fyrir að stjórn og trúnaðarmannaráð félagsins telji að úrskurður kjörstjórnar frá 20. nóvember síðastliðinn, um ólögmæti mótframboðs B-lista, standi óhaggaður, vegna annmarka sem á framboðinu voru, hefur stjórn og trúnaðarmannaráð félagsins ákveðið að fram fari á ný kosningar í félaginu, til að hafið sé yfir vafa að frambjóðendur á listum stjórnar félagsins sitji í óumdeildu umboði félagsmanna. Verður því boðað á ný til kosninga í stjórn, trúnaðarmannaráði og stjórn matsveinadeildar, til samræmis við lög félagsins og ákvörðun stjórnar og trúnaðarmannaráðs. Verður kosningin og framkvæmd hennar auglýst í fjölmiðlum og á heimasíðu félagsins við fyrsta tækifæri til samræmis við lög félagsins,“ segir í yfirlýsingunni.