„Við fögnum því að framkvæmdir fara hratt og vel af stað. Unnið er á öllum stöðum í húsinu,” segir Aðalbjörg Ingadóttir skólastjóri Fossvogsskóla. Í síðasta mánuði hófust endurbætur á skólanum vegna mygluvanda en skemmdir reyndust minni en talið var í upphafi.
Fyrir vikið var kennslan færð í Laugardalinn í höfuðstöðvar Knattspyrnusambands Íslands og í Þróttaraheimilið sem fól í sér talsvert rask á hefðbundnu skólastarfi. Sex rútur sjá um að flytja nemendur í 2. - 7. bekkjar til og frá skóla. 1. bekk er kennt í færanlegum skólastofum við skólann.
Aðalbjörg segir kennsluna ganga vel. „Samvinnan er mjög góð og allir eru samhentir í því að láta þetta ganga vel,” segir hún. Til að mynda fengu nemendur nýjar stundatöflur í kennsluhúsnæðinu.
Allir nemendur fá tilskilinn fjölda kennslustunda. Það á við um allar greinar einnig í verk- og listgreinum. Fljótleg var unnið að því að púsla því saman líkt og allri annarri kennslu. Aðalbjörg segir að strax í upphaf hafi samvinnan verið góða í krefjandi aðstæðum fyrir allt starfsfólk.
Ef fram sem horfir mæta nemendur aftur í Fossvogsskóla í haust.