„Villti laxinn hverfur – það er 100%“

Mikael Frödin er agndofa yfir að íslenskir stjórnmálamenn ætli að …
Mikael Frödin er agndofa yfir að íslenskir stjórnmálamenn ætli að taka þessa áhættu. Hann segir heimildamyndina Artifishal mjög áhrifamikla. Hún verður frumsýnd á morgun. Ljósmynd/Aðsend

Sænski blaðamaður­inn, rit­höf­und­ur­inn og laxveiðimaður­inn Mika­el Fröd­in er stadd­ur á Íslandi til að kynna nýja heim­ilda­mynd, Artif­is­hal, um skaðleg áhrif lax­eld­is í sjókví­um á vist­kerfi. Þegar Sporðaköst náðu tali af Fröd­in var hann stadd­ur ásamt hópi blaðamanna á sjó í Arnar­f­irði í námunda við sjókví­ar Arn­ar­lax. Með í för er einnig leik­stjóri mynd­ar­inn­ar Josh Murp­hy.

Ég vildi óska að ég gæti kafað hér og tekið mynd­ir og sýnt ykk­ur. Ég get lofað ykk­ur því að það yrði ekki betri sjón en ég hef séð í kví­um í Nor­egi og víðar. Þetta er alltaf jafn óhugn­an­legt. Það er of mikið af fiski á of litlu svæði og þeir fara mjög illa á því.“

Michael Fröd­in er bar­áttumaður gegn lax­eldi í opn­um sjókví­um. Hann hef­ur hlotið dóm fyr­ir að kafa niður með fisk­eldisk­ví­um í námunda við ána Alta í Nor­egi og var hann ákærður í kjöl­farið og dæmd­ur. Hann hlaut sekt upp á 1.500 evr­ur fyr­ir að hafa verið í leyf­is­leysi. Til vara var hon­um gert að sæta tutt­ugu daga varðhaldi. Mynd­irn­ar sem hann tók í leyf­is­leysi eru hluti af mynd­inni sem verður frum­sýnd á morg­un.

Ætlaði í fang­elsi

Ég ætlaði að taka fang­elsið til að vekja meiri at­hygli á þessu grafal­var­lega máli. Kerfið virk­ar hins veg­ar þannig að þeir gera fjár­nám hjá þeim sem eiga eign­ir þannig að hægt sé að ná inn fyr­ir sekt­inni.“

Hann kom til Íslands í fyrsta skipti árið 1969 og hef­ur frá þeim tíma oft komið til lands­ins til að veiða og þekk­ir Ísland vel. Hann hef­ur haldið hér fyr­ir­lest­ur um sjókvía­eldi og nú er hann kom­inn í til­efni frum­sýn­ing­ar­inn­ar.

Artif­is­hal sýn­ir áþreif­an­lega virðing­ar­leysið fyr­ir um­hverf­inu. Ef við vilj­um varðveita villtu laxa­stofn­ana fyr­ir kom­andi kyn­slóðir verðum við að breyta því hvernig við stund­um fisk­eldi. Opn­ar sjókví­ar munu leiða til þess að villtu stofn­arn­ir hverfa. Mynd­in er áhrifa­mik­il og ég held að hún sé á hár­rétt­um tíma hér á Íslandi.“

Frödin sigldi um Arnarfjörð í dag í fallegu veðri. Hann …
Fröd­in sigldi um Arn­ar­fjörð í dag í fal­legu veðri. Hann sagðist sorg­mædd­ur að sjá sjókví­arn­ar í landi þar sem jarðhiti gæti skapað besta land­eldi í heim­in­um. Ljós­mynd/​Aðsend

Hvernig líst þér á það sem þú ert að sjá í Arnar­f­irði?

Ég verð sorg­mædd­ur þegar ég sé þess­ar kví­ar. Þið eruð kannski ekki að glíma við laxal­ús­ina enn þá en erfðameng­un­in er það hættu­leg­asta og þá sér­stak­lega ef þið ætlið að fara að stór­auka eldið eins og til stend­ur. Ég skil ekki af hverju þið eruð að taka þessa áhættu að taka hundruð þúsunda tonna af fiski sem kem­ur úr allt öðru um­hverfi og það vita all­ir að þess­ir fisk­ar munu sleppa og erfðabland­ast villta ís­lenska lax­in­um. Hvernig þorið þið að taka þá áhættu að eyðileggja á ör­fá­um ára­tug­um það sem nátt­úr­an hef­ur þróað í ár­hundruð?“

„Tími ákv­arðana er núna“

Fröd­in seg­ist vera agndofa yfir ís­lensk­um stjórn­mála­mönn­um. „Þetta er ekki spurn­ing um hvort þetta ger­ist. Það er 100% og við höf­um séð það ger­ast á svo mörg­um stöðum í heim­in­um. Í Nor­egi, við Skot­land, Kan­ada og víðar.“

Hvaða skila­boð hef­ur þú til ís­lenskra stjórn­mála­manna?

Þeir eiga að læra af reynslu annarra og segja við vilj­um ekki taka þessa áhættu með opn­um sjókví­um. Þið eigið mögu­leika á að búa til frá­bært land­eldi með jarðhit­an­um og ég vona að stjórn­mála­menn­irn­ir átti sig á þessu. Hins veg­ar ef þeir halda þess­ari stefnu til streitu þá þurfa þeir líka að axla ábyrgðina. Óbreytt stefna mun eyðileggja villtu laxa­stofn­ana og þá munu stjórn­mála­menn dags­ins í dag þurfa að segja barna­börn­un­um sín­um og okk­ar hvað þeir gerðu. Tími ákv­arðana er núna, ekki eft­ir tutt­ugu ár. Þá verður það of seint.“

mbl.is