Nýr Páll Jónsson GK til Grindavíkur í haust

Nýr Páll Jónsson GK í Póllandi.
Nýr Páll Jónsson GK í Póllandi. Ljosmynd/Kjartan Viðarsson

Nýjum Páli Jónssyni GK var hleypt af stokkunum hjá Alkor-skipasmíðastöðinni í Póllandi í vikunni. Skipið er smíðað fyrir Vísi hf. í Grindavík og er fyrsta nýsmíði fyrirtækisins á skipi af þessari stærðargráðu í rúmlega hálfrar aldar sögu þess.

Skipið er sérhannað til línuveiða og er væntanlegt til heimahafnar í Grindavík í haust. Nýja skipið er 45 metra langt og 10,5 metra breitt.

Að sögn Péturs H. Pálssonar, framkvæmdastjóra Vísis, hefur smíði skipsins gengið vel. Sömuleiðis samskiptin við pólsku skipasmíðastöðina sem áður hefur unnið ýmis verkefni fyrir Vísi við endurnýjun á skipum fyrirtækisins. Nýr Páll Jónsson GK leysir af hólmi eldra skip með sama nafni.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: