Engin mygla reyndist vera samfara erfiðum raka sem kom upp í Hlíðaskóla, segir verkefnastjóri í skólanum. Skólastjórnendur í Ártúnsskóla bíða hins vegar enn frétta af sýnum sem tekin voru úr skólanum í síðasta mánuði.
Fossvogsskóla var lokað í síðasta mánuði vegna myglu og rakaskemmda og kennsla flutt yfir í Laugardal út skólaárið og þá var einni álmu Breiðholtsskóla lokað nú í vetur vegna myglu. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, sagði þá í samtali við mbl.is að fara eigi í heildarúttekt á skólahúsnæði borgarinnar.
Fram hefur komið að til skoðunar sé einnig hvort lekavandamál í fleiri skólum hafi leitt til myglu og hafa Ártúnsskóli, Seljaskóli, Hlíðaskóli og Hagaskóli verið nefnd í því sambandi.
Að sögn Önnu Ingibjargar Flosadóttur, verkefnastjóra í Hlíðaskóla, fannst engin mygla er leki kom upp í tveimur stofum í skólanum. „Það var skoðað um leið, en það fannst engin mygla,“ segir hún. Engu að síður hafi verið um erfiðan leka að ræða sem kom í gegnum útvegg. „Það er verið að gera við skólann bæði að utan og innan vegna þessa og til að fyrirbyggja myglu.“
Skólayfirvöld í Ártúnsskóla hafa engar fréttir enn fengið af sýnum sem tekin voru á fjórum stöðum í skólanum í byrjun marsmánaðar vegna gruns um myglu. Þak skólans lekur og einnig hefur verið lekavandamál meðfram gluggum á glervegg.
Rannveig Andrésdóttir, skólastjóri Ártúnsskóla, segir samtali við mbl.is að fleiri sýni hafi verið tekin í skólanum í þessum mánuði en að stjórnendur skólans hafi enn ekki fengið neinar niðurstöður. „Það verður að segjast að við erum orðin svolítið óþolinmóð,“ segir hún og kveðst ýta reglulega eftir svörum.
Ekki hefur enn verið gerð úttekt á Seljaskóla að sögn skólastjórans Magnúsar Þórs Jónssonar, en vitað er um raka í skólanum. „Það er ekki komin skoðun,“ segir hann. „Síðustu svör sem við fengum var að þetta væri inni í þessari lúpu.“ Málið sé alfarið á borði umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar.
Áður hefur verið greint hefur verið frá því að framkvæmdir í Fossvogsskóla gangi vel og að sögn Ástu Bjarney Elíasdóttir, skólastjóra Breiðholtsskóla, eru framkvæmdir þar á áætlun. Einni álmu með átta kennslustofum var lokað fyrr á þessu ári og er reiknað með að framkvæmdum ljúki í haust um leið og skólastarf hefst að nýju.